fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Myndin sem varpar ljósi á hvort þú ert með karlheila eða kvenheila

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 8. apríl 2022 05:55

Er hann að hlaupa í átt til þín eða frá þér?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndin, sem fylgir þessari grein, varpar að sögn ljósi á hvort þú ert með karlheila eða kvenheila! Það veltur á hvað þú sérð fyrst þegar þú horfir á myndina.

Eins og sést þá sýnir hún hlaupandi mann. En spurningin er hvort er hann að hlaupa í áttina til þín eða frá þér?

Svar þitt segir til um hvort heili þinn er karlkyns eða kvenkyns. Svarið er sagt geta varpað ljósi á hugsanagang fólk.

Heili okkar meðtekur myndir eins og þessar á mismunandi hátt því skynjun okkar er mismunandi sem og úrvinnsla þess sem við sjáum.

Ef þú sérð manninn hlaupa í átt til þín þá þýðir það að þú ert með karlheila. Að minnsta kosti segir Fact Factories það. Það að vera með karlheila þýðir að þú reynir að leysa vandamál og komast í gegnum áskoranir lífsins með því að nota greiningarhæfileika þína og skynsemi. Þú ert fljót(ur) að læra þegar þig langar til þess. Þú beinir allri orku þinni að hlutunum þar til þú færð hugmynd um hvernig þú getur nálgast þá. En þú átt erfitt með að vera með marga hluti í gangi samtímis, þú ert sem sagt ekki góð(ur) í að „múltítaska“, þú vilt frekar einbeita þér að einum hlut í einu. Þegar þú færð hugmynd eða hefur sterka skoðun á einhverju þá ertu reiðubúin(n) til að styðja hana með sannfærandi rökum því þú hefur mikla trú á sjálfum/sjálfri þér, einbeitingu þinni og athyglisgáfu.

Ef þú sérð manninn hlaupa frá þér þá þýðir það að þú ert með kvenheila. Það bendir til þess að greiningarhæfileikar þínir og röksemdafærsla séu í toppi. Þú treystir á skilningarvit þín og flýtir þér ekki þegar kemur að ákvarðanatöku. Heili þinn starfar best þegar þú kafar ofan í eitthvað skapandi eða þegar þú ert skapandi frá grunni. Þú ert frábær í að „múltítaska“ og minni þitt er frábært. Þú getur alltaf treyst á hugboð þitt og frábær skilningarvit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fundu 1.800 ára gömul grafhýsi full af fjársjóðum

Fundu 1.800 ára gömul grafhýsi full af fjársjóðum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Settu tennisbolta í þvottavélina – Ástæðan er algjör snilld

Settu tennisbolta í þvottavélina – Ástæðan er algjör snilld