fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Pressan

Ný heimildarmynd um Hitler – Klámfíkill sem naut þess að láta pissa á sig

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 3. maí 2021 05:36

Hitler er sagður hafa verið klámfíkill.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hafa verið gerðar ótal heimildarmyndir um Adolf Hitler en í gær var ein slík frumsýnd en hún er þó ansi óvenjuleg því í henni er fjallað um kynlíf hans og kynlífsfélaga. En það er heldur ekki dregin nein dul á að myndin snýst um einn hataðasta mann sögunnar og hvatir hans.

Myndin heitir „Hitlers Secret Sex Life“ og var frumsýnd í gær á Sky History. Að sögn erlendra fjölmiðla kemur eitt og annað óvænt fram í myndinni um kynlíf Hitlers. Meðal annars kemur fram að hann hafi átt í kynlífssambandi við systurdóttur sína, Geli Rauba, sem var 19 árum yngri en hann. Það samband er sagt hafa byrjað þegar hún var 17 ára. Í myndinni er því velt upp hvort það hafi orðið henni að bana að hún skýrði öðrum frá löngun Hitlers til að láta annað kasta af sér vatni á hann.

Það var að sögn Otto Strasses sem kom þessum orðrómi af stað en Geli Rauba er sögð hafa sagt honum frá þessum löngunum Hitlers þegar hún skýrði honum frá kynlífi sínu með Hitler. Hún fannst látin skömmu eftir að hún skýrði Strasses frá þessu. Dánarorsökin var sögð vera sjálfsvíg, að hún hafi skotið sjálfa sig í bringuna.

Einnig kemur fram í myndinni að Hitler hafi verið háður klámi og er einkalæknir hans sagður hafa sprautað hann með amfetamíni og nautasæði til að styrkja kynhvöt hans.

Annar kynlífsfélagi hans var leikkonan Renata Mueller. Hún skýrði vini sínum frá því að Hitler hafi viljað láta hana sparka í sig á meðan hann lá á gólfinu. Hann hafi beðið hana um að sparka meira í sig þegar hann lá á gólfinu og hafi örvast sífellt meira kynferðislega við þetta. Skömmu eftir að hún skýrði vini sínum frá þessu hrapaði hún til bana þegar hún datt eða var hrint út um glugga þegar liðsmenn Gestapo voru hjá henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ungur maður nauðgaði ókunnugri konu á sextugsaldri á almannafæri því hann var hreinn sveinn

Ungur maður nauðgaði ókunnugri konu á sextugsaldri á almannafæri því hann var hreinn sveinn
Pressan
Í gær

Andrew fyrrum Bretaprins fékk vændiskonur í Buckinghamhöll – Og mamma hans hylmdi yfir það

Andrew fyrrum Bretaprins fékk vændiskonur í Buckinghamhöll – Og mamma hans hylmdi yfir það
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ránið bíræfna í Louvre-safninu – Lykilorð myndavélakerfisins var eins einfalt og það gat orðið

Ránið bíræfna í Louvre-safninu – Lykilorð myndavélakerfisins var eins einfalt og það gat orðið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrverandi fulltrúi CIA: Kínverjar og Rússar senda „kynlífsnjósnara“ til Bandaríkjanna

Fyrrverandi fulltrúi CIA: Kínverjar og Rússar senda „kynlífsnjósnara“ til Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þingkona missti stjórn á sér á flugvelli og urðaði yfir starfsmenn

Þingkona missti stjórn á sér á flugvelli og urðaði yfir starfsmenn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Snýr óvænt aftur eftir 8 ára fjarveru

Snýr óvænt aftur eftir 8 ára fjarveru