fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Enn hert á aðgerðum vegna COVID-19 í Danmörku – Nær öllum verslunum lokað

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 18. mars 2020 08:02

Mörg erlend ríki stunda njósnir í Danmörku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danska ríkisstjórnin kynnti í gærkvöldi enn harðari aðgerðir til að reyna að hefta útbreiðslu COVID-19 veirunnar en áður hafði verið gripið til margvíslegra aðgerða. Frá og með klukkan 10 í dag mega fleiri en 10 manns ekki koma saman og gildir bannið innan- og utandyra á opinberum vettvangi. Ríkisstjórnin mælist einnig til að fólk fylgi þessari reglu á heimilum sínum. Bannið nær þó ekki til vinnustaða og almenningssamganga.

Auk þess verður verslunarmiðstöðvum lokað sem og kaffihúsum, hárgreiðslustofum, skemmtistöðum, börum og nær öllum öðrum verslunum nema þeim sem selja matvörur. Matsölustöðum verður heimilt að selja mat sem viðskiptavinir sækja eða fá sendan heim. Líkamsræktarstöðvar verða einnig að loka.

Auknar kröfur verða gerðar til matvöruverslana og verða þær nú að gera viðskiptavinum kleift að þvo sér um hendurnar og/eða nota handspritt í verslununum. Verslanirnar verða einnig að tryggja að viðskiptavinirnir haldi góðri fjarlægð sín á milli.

Apótek verða áfram opin. Nóg er til af mat og lyfjum í landinu og er almenningur því hvattur til að stilla innkaupum í hóf, engin þörf sé á að hamstra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu