fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Tveir mánuðir liðu þar til lík námsmanns fannst á stúdentagörðum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 3. október 2019 20:30

Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var ekki fyrr en íbúi á stúdentagörðum í Christchurch á Nýja-Sjálandi tilkynnti um vonda lykt í húsinu að farið var að kanna með annan nemanda sem bjó á stúdentagörðunum. Hann reyndist vera látinn og hafði verið það í um átta vikur þegar lögreglan fann lík hans. Málið hefur að vonum vakið áhyggjur af aðstæðum námsfólks og vellíðan þess.

The Guardian segir að faðir hins látna hafi einnig sett sig í samband við lögregluna af því að hann náði ekki sambandi við hann. Ekki er enn vitað hvað varð unga manninum að bana en vegna ástands líksins þurfti lögreglan að fá sérhæfða réttarmeinafræðinga til að bera kennsl á líkið og framkvæma nauðsynlegar rannsóknir á því.

Herbergi unga mannsins er innst á gangi. Íbúarnir sjá sjálfir um þrif svo engin lagði leið sína í herbergið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu