fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

„Ég elska þig að eilífu“ – Skilur eftir hjartnæma og fallega gjöf fyrir dóttur sína

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 6. mars 2019 07:15

Lena með Lexi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

42 ára móðir, Lena Pearce frá Nottinghamskíri á Englandi, veit að hún á ekki langt eftir ólifað en hún þjáist af MND sem er ólæknandi taugasjúkdómur. Hún greindist með sjúkdóminn í september 2017. Í kjölfar þess ákvað hún að það væri eitt og annað sem hún vildi gera áður en hinsta stundin rennur upp.

Lena segir að auðvitað hafi það verið mikið áfall að fá að vita að hún væri með ólæknandi sjúkdóm sem mun draga hana til dauða. Hún hefur reynt að takast á við örlög sína af æðruleysi en óttast mest að dóttir hennar gleymi henni.

Hún hefur meðal annars staðið fyrir eigin erfidrykkju, farið í ferðalög með fimm ára dóttur sinni, Lexi, og farið út að skemmta sér á nektarstað með vinkonum sínum. En það mikilvægasta sem hún hefur gert er að skrifa afmæliskort handa Lexi. Eitt kort fyrir hvert ár þar til Lexi verður fertug.

Hluti bréfanna.

Með kortunum vill hún tryggja að Lexi gleymi henni ekki og gefa henni góð ráð um ýmislegt varðandi lífið, ráð sem mæður vilja gjarnan gefa dætrum sínum. Það eru til dæmis ráð um stráka, ökunámið og notkun á snyrtivörum.

Þegar Lexi verður 10 ára fær hún að sjálfsögðu kort frá móður sinni en í því stendur:

„Til uppáhalds og fallegu 10 ára stelpunnar minnar. Njóttu síðasta ársins í grunnskóla því á næsta ári byrjar vinnan af alvöru! Ást mín og hugsanir eru alltaf hjá þér. Ástarkveðjur, mamma.“

Þegar hún verður 11 ára fær hún eftirfarandi texta:

„Til fallegu og frábæru 11 ára stúlkunnar minnar. Vá, ég man eftir fyrsta skóladeginum þínum eins og hann hafi verið í gær. Ég vildi að ég væri hjá þér til að faðma þig við skólalóðina. Vona að þú eigir frábæran afmælisdag. Eins og alltaf fullt af ástarkveðjum frá mömmu.“

Eitt bréfanna.

Þegar hún verður 17 ára fær hún eftirfarandi texta:

„Til fallegu og frábæru 17 ára stelpunnar minnar. Ég vona að strákarnir komi vel fram við þig! Þú hefur ekki enn náð aldri til að gera alveg allt . . . .! En byrjaðu ökunámið sem fyrst! Vona að þú eigir frábæran afmælisdag. Eins og alltaf fullt af ástarkveðjum frá mömmu.“

Lexi mun einnig fá jólakort frá móður sinni, í einu þeirra stendur:

„Ég hef alltaf vitað að ég elska þig af öllu hjarta og að ég mun fylgjast með þér héðan að ofan. Njóttu jólanna með gleði, hlátri og fjölskyldunni. Ég verð alltaf engillinn við hlið þér. Þú verður í hjarta mínu og sál að eilífu, mamma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll

400 manns búa á eyju á stærð við fótboltavöll
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Nú eru fleiri eldri en 65 ára en yngri en 15 ára í Kína

Nú eru fleiri eldri en 65 ára en yngri en 15 ára í Kína
Pressan
Í gær

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“

Ítölsk hástéttarkona myrti mann sem stal af henni handtöskunni hennar – „Það voru mikilvæg skjöl í töskunni minni“
Pressan
Í gær

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma

Vonast til að „drápsrofi“ Apple muni kollvarpa markaði fyrir stolna síma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nágrannar lýsa Stephen sem viðkvæmum manni – liggur milli heims og helju á sjúkrahúsi

Nágrannar lýsa Stephen sem viðkvæmum manni – liggur milli heims og helju á sjúkrahúsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna

Síkkópati opnar sig – Þetta er „auðveldasta“ manneskjan til að stjórna