fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Matur

Kjúklingabaunir í basil kókossósu

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 21. september 2023 16:00

Mynd: Heimkaup

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessar dásamlegu kjúklingabaunir eru algjör snilld!

Hráefni

  • 800 g Kjúklingabaunir
  • 1/2 Laukur, saxaður
  • 1 Paprika
  • 5 Hvítlauksrif, pressuð
  • 2 msk Engifer, smátt saxað
  • 400 ml Kókosmjólk
  • Safi úr 1 límónu
  • 10 g Basilíka
  • 2 msk Ólífuolía
  • 1 stk Salt
  • 1 stk Pipar
  • 2 msk Karrý

Leiðbeiningar

  1. Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, papriku, hvítlauk og engifer. Kryddið með salti og pipar. Eldið í 3-5 mínútur eða þar til laukurinn er farinn að mýkjast.
  2. Bætið basilíku og karrý saman við. Látið malla í 2 mínútur. Bætið kjúklingabaunum saman við, án vökva.
  3. Látið þá kókosmjólk og límónusafann saman við. Látið malla áfram í 5 mínútur við vægan hita.
  4. Smakkið til og bætið salti, pipar eða límónusafa ef þurfa þykir.

Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, sniðugt ekki satt?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
18.07.2024

Skíthæll í Costco vekur hlátur

Skíthæll í Costco vekur hlátur
Matur
13.07.2024

Ertu með frábæra uppskrift að brauðtertu? Þá getur þú orðið Íslandsmeistari og fengið glæsileg verðlaun

Ertu með frábæra uppskrift að brauðtertu? Þá getur þú orðið Íslandsmeistari og fengið glæsileg verðlaun