fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Matur

Þetta borðar Kristín Björgvins á venjulegum degi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 20. mars 2021 12:30

Kristín Sif Björgvinsdóttir. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Sif Björgvinsdóttir, afreksíþrótta- og útvarpskona, segir mataræðið skipta öllu máli þegar kemur að því að æfa af kappi og ná árangri. Venjulegur dagur hjá Kristínu Sif er annasamur en hvað ætli hún borði?

Það er skrýtið að hugsa til þess að ég sé með jafn marga tíma í sólarhringnum og Kristín Sif Björgvinsdóttir. Hún hressir landsmenn með jákvæðu og skemmtilegu lífsviðhorfi á útvarpsstöðinni K100, hún æfir CrossFit og hnefaleika af kappi og er auk þess tveggja barna móðir. Dagurinn byrjar snemma hjá Kristínu.

„Kvöldið áður geri ég allt dótið mitt fyrir ræktina og daginn tilbúið. Ég byrja síðan daginn snemma og drekk ITSblönduna, sem er eplaedik og engifer. Tek vítamínin mín sem eru öll náttúruleg frá New Nordic ásamt D-vítamíni og Pure Arctic lýsi. Drekk stórt glas af vatni og legg síðan af stað í daginn,“ segir Kristín

Nóg að gera

„Venjulegur dagur byrjar á K100 í morgunþættinum Ísland vaknar þar sem ég er einn af þremur þáttastjórnendum. Þar er hlegið saman í nokkra tíma,“ segir Kristín.

„Eftir það held ég áfram að vinna sem einn af næringarþjálfurum ITS Transformation sem hjálpar fólki með mataræði og svo miklu meira en það. Þegar ég er búin að því skelli ég mér á æfingu, ég æfi í CrossFit Reykjavík og fylgi prógrammi frá styrktarþjálfaranum mínum honum Unnari Helga – Unleash Training og suma daga fer ég í einkatíma hjá hnefaleikaþjálfara. Ég æfi hnefaleika hjá Mjölni og er í keppnisliði Hnefaleikafélags Reykjavíkur. Inn á milli er ég að sækja og skutla börnunum mínum og sinna þeim og reyni að vera alltaf heima til að gefa þeim að borða og sinna þeim vel þegar þau eru ekki í skólanum eða að stunda íþróttir.“

Æfir stundum á fastandi maga

Aðspurð hvað henni þykir best að borða fyrir æfingu segir Kristín að hún borði yfirleitt einum til tveimur tímum fyrir æfingu.

„Ég fæ mér oft ristaða lífskornabollu með kalkúnaskinku og osti og skyr. Ég fæ mér líka stundum ávöxt eða það sem mig langar í þann dag. Æfi líka stundum á fastandi maga. Fasta mjög oft til 12-13 og er nýfarin að taka inn á milli sólarhringsföstu,“ segir hún.

Mataræðið er allt

Kristín þekkir það af eigin raun hvað mataræðið skiptir miklu máli þegar kemur að því að æfa afreksíþróttir og keppa. „Mataræðið er allt. Það að æfa mikið krefst mikillar orku og þá er eins gott að borða nóg af gæða fæðu í réttum hlutföllum. Ég finn það mjög vel eftir að ég byrjaði að borða eftir macrosmataræðinu að blóðsykurinn er í mun betra jafnvægi, bætingarnar svakalegar og orkan hundrað prósent betri til að æfa eins mikið og ég geri,“ segir hún. Kristín fylgir macros-mataræðinu hjá næringarþjálfaranum Inga Torfa hjá ITS Transformations, þar sem hún starfar einnig sem næringarþjálfari.

Aðspurð hvernig hún fari að því að halda skipulagi og aga segir Kristín að það sem hún er að gera sé svo gaman að það sé ekki svo erfitt. „Ég passa að skoða gildin mín reglulega og bera saman hvað ég er að gera við þau. Er það sem ég er að gera að færa mig nær markmiðum mínum?“ segir hún og bætir við:

„En það koma dagar þar sem ég er þreytt og langar ekkert á æfingu og bara að fá mér ís, en þá er extra mikilvægt að mæta á æfingu og velja eitthvað sem nærir mig vel í matinn.“

Kristín Sif Björgvinsdóttir. Mynd/Anton Brink

Matseðill Kristínar Sifjar

Hádegismatur

Lífskornabolla með kalkúnaskinku og osti. Weetabix með laktósafrírri mjólk.

Millimál

Epli eða banani. Finn Crisp með kotasælu.

Kvöldmatur

Kjúklingalæri, ofnbakaðir tómatar, hrísgrjón. brokkólí eða það grænmeti sem er til. Borða líka oft fisk eða geggjaða crock pot rétti, eins og chili con carne.

Kvöldsnarl

Fæ mér stundum smá skyr ef ég þarf að klára macros. Harðfisk eða það sem vantar upp á.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa