fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Gott með grillinu um verslunarmannahelgina

Ritstjórn DV
Föstudaginn 2. ágúst 2019 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarið er tíminn þegar sólin skín og logar í grillum. Grillmatur getur verið óskaplega fjölbreyttur, enda er það eldunaraðferðin ein sem skilgreinir máltíð sem grillmáltíð. Þá gildir einu hvort maður kastar hrefnukjöti, risarækjum, nautatungu eða portobellosvepp yfir logana.

Meðlætið getur skipt sköpum, og þar er sannarlega hægt að láta sköpunargleðina njóta sín. Hér eru þrjú salöt sem tilvalið er að bera á borð um helgina.

Sætt, salt, og örlítið sterkt.
Galdrablandan kólnar Sætt, salt, og örlítið sterkt.Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hið ómótstæðilega sumarsalat

Iceberg-salat
Klettasalat
Mangó
Cherry-tómatar

Þarna er dísætu hlynsírópi hellt á pönnuna.
Hnetur og maísflögur Þarna er dísætu hlynsírópi hellt á pönnuna. Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hér kemur svo galdurinn:
2 bollar svartar Doritos-flögur, muldar
1 bolli kasjúhnetur
3 msk. hlynsíróp
2 msk. sykur

Aðferð: Skerið salatið í strimla, tómatana í fjórðunga, mangóið í teninga og setjið í skál með klettasalatinu. Magnið fer eftir því hversu margir eru í veislunni og hversu svangir gestirnir eru. Þó er líklegt að salatið muni klárast óháð stærð, svo gómsætt er það nefnilega. Hitið pönnu miðlungsmikið og þurrristið kasjúhneturnar. Þegar þær eru rétt byrjaðar að fá á sig gullinn lit er Doritos-flögunum bætt út á pönnuna. Þurrristið blönduna saman í nokkrar mínútur og bætið svo við hlynsírópi og sykri. Steikið áfram í nokkrar mínútur. Látið kólna og brjótið niður áður en dásemdinni er dreift yfir salatið.

Svona er best að skera mangó

Svona er best að skera mangó

Hér er komin hin fullkomna aðferð til að nýta mangóávöxtinn sem best. Skerið meðfram steininum báðum megin og notið glas eða bolla til að skafa kjötið úr hýðinu.

Í fallegri skál með ferskum kryddjurtum.
Klassíska kartöflusalatið Í fallegri skál með ferskum kryddjurtum.Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Klassíska kartöflusalatið

Soðnar kartöflur
Graslaukur
Rauð paprika
Kóríander
4 msk. majónes
½ dós sýrður rjómi

Aðferð: Blandið majónesi og sýrðum rjóma í skál. Skerið kældar kartöflur og papriku í bita. Klippið væn knippi af graslauk og kóríander og blandið við salatið.

Kartöflusalat sem kemur á óvart.
Ótrúlega bragðgott Kartöflusalat sem kemur á óvart.Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Nýstárlega kartöflusalatið

Soðnar kartöflur
Sellerí
Döðlur
2 msk. dijon-sinnep
4 msk. extra virgin-ólífuolía
Salt

Aðferð: Byrjið á að setja sinnepið og ólífuolíuna saman í skál og hræra duglega. Skerið kældar kartöflur í bita, sellerí í sneiðar og döðlur smátt. Blandið öllu saman í skál og saltið eftir smekk. Þetta salat bragðast best eftir klukkustund í kæli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa