fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Matur

Jordan lét börnin borða 27 kaloríu pönnukökur og vonbrigðin leyna sér ekki

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Miðvikudaginn 6. mars 2019 16:30

Frábær mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katie Price, fyrrverandi glamúrmódelið sem gekk undir nafninu Jordan, er mikill áhrifavaldur á samfélagsmiðlum í Bretlandi, eða allavega að reyna það. Hún tók upp á því á sjálfan sprengidaginn að auglýsa vörur frá Skinny Food Co, og bauð börnunum sínum upp á pönnukökur sem innihalda aðeins 27 hitaeiningar og sykurlaust síróp með.

Eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Katie deildi á Instagram leyna vonbrigði barnanna sér ekki, þá sérstaklega Harveys, sem líst ekkert á blikinu.

https://www.instagram.com/p/Buo2uLyh_HF/

Sprengidagur er pönnukökudagur í Bretlandi og fannst fylgjendum stjörnunnar ansi hart að börnin fengu þessar aumu pönnukökur þennan dag.

„Gefðu aumingja börnunum smá Nutella,“ skrifar einn fylgjandi og annar bætir við: „Harvey er að hugsa: Ég ætla ekki að borða þetta drasl!“

Katie varð næstum því gjaldþrota á síðasta ári og hefur staðið í ströngu að þéna nóg til að halda sér og börnunum uppi, meðal annars með því að gera auglýsingasamninga við fyrirtæki á borð við Skinny Food Co.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
29.08.2024

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins
Matur
03.08.2024

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?
Matur
22.06.2024

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar
Matur
18.06.2024

Bjóða upp á hamborgara frá ýmsum heimshornum

Bjóða upp á hamborgara frá ýmsum heimshornum