Þorbjörg Svana Gunnarsdóttir er lærð hárgreiðslukona, útstillingahönnuður og hundaþjálfari, en hún hefur verið í veikindaleyfi vegna slyss sem olli henni vægum heilaskaða fyrir rúmum þremur árum. Hún er að vinna í bata og segir að kollagenið frá Protis hafi hjálpað sér gríðarlega við að jafna sig á ýmsu sem misfórst eftir slysið.

„Vinkona mín benti mér á að prófa kollagenið og ég byrjaði að taka það inn fyrir rúmu ári síðan. Hún talaði ofboðslega vel um þetta og ég hafði séð þetta hjálpa henni mikið og sjálf er ég búin að leita allra ráða til að verða aftur ég eftir slysið, þannig að ég prófaði,“ segir Þorbjörg. „Ég er rosa þakklát fyrir ábendinguna, því ég er búin að prófa ýmislegt sem hefur verið mælt með án teljandi árangurs og margt af því er miklu dýrara, en fæðubótarefnin frá Protis eru æði. Ég er mjög þakklát fyrir að finna svona gæðavöru á góðu verði.“

Áhrifin komu á óvart

„Ég finn rosalegan mun á mér og satt að segja kom það mér á óvart hvað þetta breytti miklu, því ég hef prófað kollagen frá öðrum framleiðendum sem hjálpaði mér ekki eins mikið,“ segir Þorbjörg. „Eftir slysið fór allt kerfið mitt í klessu en ég finn núna mikinn mun á hárinu, húðinni og er mun betri, finn ég, af liðverkjum.

Ég hef alltaf verið íþróttakona en eftir slysið varð ég mjög veik og liðirnir veiktust svo mikið að ég gat ekkert gert. En síðasta ár hef ég getað byrjað að hreyfa mig aftur,“ segir Þorbjörg. „Nú get ég stundað líkamsrækt aftur, ekki mikið að vísu, en ég finn mun, sem er frábært.“

Húðin ekki lengur eins þurr

„Ég hef alltaf glímt við exem og verið með mjög þurra húð svo ég hef þurft að bera á mig krem, body lotion og skrúbba hælana, en eftir að ég byrjaði að nota kollagenið þarf ég ekki lengur body lotion og finn mun á hælunum líka, því ég er ekki lengur eins þurr í húðinni,“ segir Þorbjörg. „Núna finnst mér hún hafa miklu meiri gljáa og hreinlega glansa, án þess að vera feit. Húðin er miklu meira lifandi, ferskari og hún bara glóir. Þannig að ég finn hvað þetta hjálpar henni mikið.“

Hárið þykkara og heilbrigðara

„Ég vann sem hárgreiðslukona fyrir slysið svo ég spái mikið í hári. Ég hef tekið eftir því að það kemur rosa mikill gljái í hárið og mér finnst það síkka hraðar, það er þykkara og það er falleg hreyfing og miklu meira líf í því,“ segir Þorbjörg. „Það er bara algjör snilld. Allir vilja hafa fallegt hár og konur sækjast sérstaklega eftir því að fá gljáa í hárið og þetta er undraefni fyrir það.

Ég hef líka séð mikinn mun á hári vinkonu minnar sem benti mér á þetta. Hárið hennar var í vondu ástandi áður en hún byrjaði að nota kollagenið, það var mjög fíngert og síkkaði aldrei því það brotnaði svo auðveldlega,“ útskýrir Þorbjörg. „En nú er það orðið fallegt og heilbrigt og ég hef aldrei séð hana með svona sítt hár.

Það er magnað hvað álag, áföll og streita hefur mikil áhrif á hárið. Eftir slysið tók ég eftir miklum neikvæðum áhrifum á hárið mitt en eftir að ég byrjaði á kollageninu hefur það lagast mikið. Þetta er bara geggjuð vara og algjört töframeðal, enda er ég í hálfgerðri áskrift,“ segir Þorbjörg að lokum.

Um Protis® Kollagen

Kollagen er náttúrulegt prótín og eitt helsta byggingarefni líkamans.

Gott að vita um Protis® Kollagen:

  • Mikið magn virkra efna
  • Engin aukaefni
  • Sýnilegur árangur á 30 dögum
  • Íslenskt hugvit og framleiðsla
  • Ekkert gelatín eða sykur

Protis® Kollagen er framleitt úr íslensku fiskroði. Varan er einstök blanda af bestu innihaldsefnum sem öll styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. Kollagen úr fiski er áhrifaríkara en kollagen úr landdýrum þar sem upptaka úr meltingarvegi er betri.

Helstu innihaldsefni:

  • SeaCol® er blanda af vatnsrofnu kollageni úr íslensku fiskroði og vatnsrofnu þorskprótíni úr íslenskum þorski. SeaCol® tekur þátt í að styrkja vefi líkamans og viðhalda teygjanleika.
  • C-vítamín tekur þátt í myndun kollagens í líkamanum.
  • Hyaluronic-sýra er eitt mest rakagefandi efni náttúrunnar og viðheldur meðal annars raka húðarinnar.
  • Kóensím Q10 er að finna í nær öllum frumum líkamans. Það er mikilvægt fyrir endurnýjun fruma eins og húðfruma.
  • B2- og B3-vítamín, sink, kopar og bíótín fyrir hárvöxt, endurnýjun húðar og vöxt nagla.

Protis® Kollagen fæst í næsta apóteki, heilsuvöruverslun og stórverslun.Nánar á protis.is.