
Í tilkynningu frá Heklu kemur fram að kynnt verði spennandi úrval bíla, allt frá breyttum fjallajeppum til langdrægra rafbíla. Þá verður boðið upp á ís frá Valdís og rjúkandi kaffi frá Kaffitári.
„Stjörnur sýningarinnar verða Audi Q6 e-tron og 37” breyttur Volkswagen Amarok. Við kynnum nýtt og betra verð og enn meiri drægni á Audi Q6. Hann fangar athyglina hvar sem hann kemur og dregur allt að 640 km á rafmagni (samkvæmt WLTP). Snillingarnir í Arctir Trucks breyttu Volkswagen Amarok sýningarbílnum okkar fyrir 37” dekk. Alvöru fjallajeppi sem er eins og hann sé sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður,” segir í tilkynningu Heklu.
Þá verða sýningarsalir fullir af öðrum áhugaverðum bílum frá Škoda, Volkswagen, Mitsubishi, Audi og GWM. Verið velkomin á ferðasýningu Heklu á laugardaginn.

