

Sumardagurinn fyrsti er loksins runninn upp! Við höfum greint nýjustu gögnin og tekið saman lista yfir þær vörur sem Íslendingar eru að tryggja sér fyrir komandi tímabil. Þetta eru hlutirnir sem sitja nú í efstu sætum vinsældalista okkar.
Það leikur enginn vafi á því hvað er vinsælast í kvennadeildinni í vor – þægindi mæta fáguðum stíl.
Trendý: Adidas Handball Spezial W – Þessir skór hafa slegið rækilega í gegn og eru meðal mest seldu varanna á öllum listanum. Þeir eru algjör nauðsyn fyrir þær sem leita að „cool“ hversdagsstíl fyrir sumarið.
Nýjung sem allir munu elska: Adidas Samba Jane: Ef þú hélst að Samba-æðið gæti ekki orðið stærra, þá kynnum við Adidas Samba Jane. Hér mæst hinir klassísku og sportlegu Samba-skór og hinir ofur vinsælu Mary Jane-ballerínuskór. Útkoman er einstaklega kvenlegur og „chic“ hversdagsskór sem passar jafnt við létta sumarkjóla og víðar buxur – klárlega ein af heitustu vörunum fyrir sumarið 2026.

Skoðaðu Adidas Handball Spezial hér.
Skoðaðu allt úrvalið af strigaskóm á Boozt hér.
Premium: Stine Goya and Rotate Sunday Dönsku hönnunarmerkin eru í algjörum sérflokki þegar kemur að því að grípa strauma sumarsins. Stine Goya heillar með sínum listrænu munstrum og líflegu litum sem eru fullkomnir í sumarboðin, á meðan Rotate (og Rotate Sunday línan) býður upp á vandaðan stíl sem geislar af sjálfsöryggi. Hvort sem þú leitar að áberandi kjól eða vönduðum gæðafatnaði til að hressa upp á fataskápinn, þá eru þessi merki í efstu sætum yfir það sem Íslendingar tryggja sér á Boozt fyrir sumarið.


Sjáðu allt frá Stine Goya hér.
Sjáðu allt frá Rotate hér.
Kynntu þér alla okkar kjóla fyrir sumarið hér.
Íslenskir karlmenn leita í auknum mæli í blöndu af klassískum gæðum og afslöppuðum sumarstíl, þar sem víðari snið og vönduð efni eins og hör og bómull eru í aðalhlutverki.
Vinsælast: Selected skyrtur og buxur – Selected heldur stöðu sinni sem eitt vinsælasta merkið á Boozt. Í sumar eru það sérstaklega röndóttar skyrtur og hörbuxur í víðara sniði sem rjúka út. Merkið býður upp á hið fullkomna „effortless“ útlit þar sem jarðlitir og léttir pasteltonar mætast í skyrtum, stuttbuxum og jakkafatabuxum sem henta jafnt í vinnuna og grillveislur sumarsins.
Sívinsælt: Polo Ralph Lauren – Þegar kemur að tímalausum glæsileika er Ralph Lauren efst á blaði. Klassískir pólóbolir í ferskum sumarlitum eins og sítrónugulum og himinbláum eru hreinlega ómissandi í sumarfataskápinn. Samhliða þeim eru léttar bómullapeysur og stílhreinir vorjakkar frá merkinu meðal söluhæstu vara, enda veita þeir það fágaða en afslappaða yfirbragð sem einkennir herratískuna árið 2026.


Sjáðu allt frá Selected hér.
Sjáðu allt frá Ralph Lauren hér.
Kynntu þér allan fatnað fyrir herra hér.
Sumarið hjá krökkunum snýst um frelsi og vandaðan fatnað sem þolir útiveruna.
Vinsælast: Name It barnafatnaður – Name It er risi í barnadeildinni og sumarvörurnar þeirra eru nú á meðal mest seldu varanna í flokknum. Ástæðan er einföld: Merkið skilur íslenskt veðurfar fullkomlega. Fatnaðurinn er hannaður með virka krakka í huga og sameinar þægindi, endingu og stíl á frábæru verði.

Gæði: Wheat – Wheat er í miklu uppáhaldi hjá foreldrum sem vilja hágæða danskan barnafatnað. Merkið er þekkt fyrir sinn fallega, skandinavíska stíl þar sem mýkt og hreyfifrelsi eru í fyrirrúmi. Útifatnaðurinn frá Wheat, eins og léttir sumargallar og vindjakkar, er hannaður til að standast íslenska rokið og rigninguna án þess að fórna stílhreinu útliti. Merkið er í toppbaráttunni á Boozt með hönnun sem passar fullkomlega við íslenska sumarið.

Sjáðu allar vörur frá Name it hér.
Sjáðu allar vörur frá Wheat hér.
Sjáðu allan barnafatnað hér.
Með hækkandi sól færist áherslan yfir í aukinn raka, hámarksljóma og vörur sem vernda okkur gegn umhverfisáhrifum. Íslendingar hafa sjaldan verið jafn upplýstir um virk innihaldsefni og gæði, og það endurspeglast í sölulistum Boozt þar sem nýstárleg tækni og traust lúxusmerki leiða hópinn. Hvort sem þú vilt endurnýja húðina eftir veturinn eða gefa hárinu þann glans sem það á skilið, eru þetta vörumerkin sem gera kraftaverk fyrir sumarið:
K-Beauty (kóresk snyrtifræði): Medicube & Dr. Althea – Vörurnar frá Medicube hafa flogið upp sölulistann hjá Boozt og þá sérstaklega PDRN Pink Collagen Capsule Cream. Þetta nýstárlega rakakrem inniheldur bleik kollagenhylki og PDRN (unnið úr laxa-DNA) sem endurnýjar húðina og gefur henni fyllingu. Til að hámarka árangurinn mælum við með að nota kremið ásamt PDRN Pink Peptide Serumi, en saman vinna þessar vörur að því að endurheimta teygjanleika húðarinnar, jafna húðlit og gefa henni þennan eftirsótta og heilbrigða K-Beauty ljóma.

Íslendingar eru greinilega að fjárfesta í faglegri húðumhirðu fyrir sumarsólina. Samhliða því er Dr. Althea að gera allt vitlaust, en merkið er þekkt fyrir að sameina náttúruleg innihaldsefni og vísindi til að gefa húðinni dásamlegan ljóma.

Klassík: Kérastase – Kérastase hefur lengi verið eitt vinsælasta vörumerkið á Boozt. Eftir langan vetur er tilvalið að nota sumarið sem tilefni til að gefa hárinu nýtt líf og þann raka sem það þarf fyrir hækkandi sól. Hvort sem það er hin goðsagnakennda Elixir Ultime hárolía eða Genesis línan fyrir aukinn styrk, þá tryggir Kérastase að hárið geisli af heilbrigði og glans.

Sjáðu allt frá K-Beauty hér.
Sjáðu allt frá Kérastase hér.
Sjáðu allar snyrtivörur hér.
Hreyfing og útivist eru stór hluti af íslenska sumrinu og skófatnaðurinn skiptir þar öllu máli.
Vinsælast: New Balance 530, 327 og 574 – New Balance týpurnar eru ótrúlega vinsælar og rjúka út. 530 módelið, ásamt 327 og 574, eru nú aðal valkostirnir fyrir þá sem vilja blöndu af „retro“ sport útliti og flottum hversdagsstíl.

Kynntu þér New Balance fyrir konur hér.
Kynntu þér New Balance vörur fyrir karla hér.
Sjáðu allar sportvörur hér.
Lífgaðu upp á heimilið með vönduðum vefnaðarvörum og tímalausri hönnun.
Glæsileg hönnun: Lexington – Lexington er eitt okkar vinsælasta merki fyrir heimilið. Vörurnar þeirra veita lúxustilfinningu sem passar fullkomlega þegar hressa á upp á heimilið fyrir sumarið.

Trend: Noble House Tellus diskamottur – Þessar diskamottur eru óvæntur sigurvegari og eru meðal mest seldu heimilisvaranna; jafnt hagnýtar sem stílhreinar fyrir pallinn eða svalirnar.

Sjáðu allt frá Lexington hér.
Sjáðu allar vörur fyrir heimilið hér.
Njóttu sumarsins! Kíktu á úrvalið og finndu það sem þig vantar fyrir sumarið á Boozt.com!