Samstarf

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur

Mynd
Sérstök vinaverð eru í gangi fram á miðnætti í dag. Nældu þér í alvöru flugelda á enn betra verði og kveddu gamla árið með stæl.

Sérstök vinaverð eru nú í gangi hjá Stóra flugeldamarkaðnum. Að auki er Facebookleikur í gangi þar sem veitt verða vegleg verðlaun.

Vinadagurinn brast á með látum í Stóra flugeldamarkaðnum í dag, laugardag. Hægt verður að næla sér í svakalegar sprengjur á einstöku verði allan daginn en opið verður frá klukkan 10 til 22. Á netinu er vinaverð þegar komið í gang og gildir til miðnættis í kvöld.

Rúnar Ólafsson, eigandi Stóra flugeldamarkaðarins segir sprengjugleði Íslendinga hvergi hafa dvínað síðustu ár. „Ég hef verið í flugeldabransanum í 35 ár og við höfum aldrei selt eins marga flugelda og á síðasta ári, við áttum ekki eftir eitt einasta prik þegar við lokuðum á gamlársdag.“

Tólf ára afmæli Vinadagsins!

„Þetta er í 12. skiptið sem við höldum vinsæla Vinadaginn og því verður allt tryllt þetta árið, engar hækkanir á verði, stærri sprengjur og mjög veglegur leikur í gangi á Facebook síðunni okkar.“

Vinadagurinn fyrir alla

„Við erum með mjög breiða línu af flugeldum og höfum frá upphafi flutt inn stórar sprengjur fyrir dellukalla. Við tókum upp á því að vera með lokaðan vinadag á Facebook þar sem hægt var að nálgast flugelda á sérstöku verði. Við gátum þá afgreitt alla dellukallana á einu bretti. Ásóknin var alltaf gríðarleg og fyrir nokkrum árum ákváðum við því að opna Vinadaginn almenningi. Það sló heldur betur í gegn.

Í þrjú síðustu ár höfum við verið með vinadaginn á netinu líka og þá teygist hann yfir þrjá daga, 26. til 28. desember. Það er eins í ár, Vinadagurinn gildir til miðnættis í dag og þarna erum við að tala um verð sem sjást ekki annars staðar enda ákváðum við að hækka ekki verðin milli ára, enn er hægt að kaupa á „vinaverði“ núna á vefsíðunni okkar storiflugeldamarkadurinn.is. Þar getur þú lagt inn pöntun og sótt frá 28. desember þegar við opnum og til 31. desember þegar við lokum. Þú keyrir til okkar niður í verslun okkar Smiðshöfða 19, við Gullinbrú.“

Flugeldaleikur og vegleg verðlaun

„Við erum einnig með stórskemmtilegan Facebook leik í gangi þar sem einn heppinn getur unnið bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur.“ 

Hægt er að taka þátt í leiknum á Facebook. Dregið verður í kvöld.