Umhverfismál skipta okkur í ELKO miklu máli og höfum við lagt sérstaka áherslu á hringrásarhagkerfi raftækja í formi 30 daga skilaréttar og endursölu á notuðum vörum,“ segir Valur Hólm Sigurgeirsson, þjálfunarstjóri hjá ELKO.

Ábyrg endurvinnsla

ELKO er einnig í samstarfi við Foxway Group í Eistlandi sem tekur við öllum þeim vörum sem með hagkvæmum hætti má koma áfram í hringrásarhagkerfið. Með þessu móti geta viðskiptavinir skilað inn vörum eins og snjallsímum, spjaldtölvum, fartölvum og leikjatölvum og fengið greitt fyrir vörurnar miðað við ástand þeirra og virði samkvæmt þar til gerðri reiknivél og er greiðslan í formi gjafakorts í ELKO sem rennur aldrei út.

Við móttöku tækjanna er farið yfir tékklista með viðskiptavinum, tækið yfirfarið og séð til þess að búið sé að eyða öllum gögnum af tækinu. Tækjunum er því næst safnað saman og þau send í ábyrgt endurvinnslukerfi þar sem snjalltækin eru annað hvort yfirfarin og endurnýtt eða endurunnin eins og hægt er.

Finna má endurvinnsluskápa í öllum verslunum ELKO.

Valur segir að sem leiðandi fyrirtæki á raftækjamarkaði sé gríðarlega mikilvægt að stuðla að því að sem flest raftæki sem ekki eru lengur í notkun skili sér aftur inn í hringrásarhagkerfi raftækja þar sem þau er ýmist endurunnin eftir ítrustu stöðlum eða endurnýtt á nýjum mörkuðum. Þessi raftæki innihalda ekki aðeins hættuleg, eitruð og umhverfisskaðleg efni heldur innihalda þau einnig dýrmæt efni sem ætti að endurnota. Það er takmarkað magn af þessum efnum til í heiminum og þar sem uppsprettur sumra þeirra eru ekki endurnýjanlegar þurfum við að tryggja að þessi efni séu endurnýtt.

Verðmæti leynast í skúffunum

„Staðreyndin er sú að það leynast ótrúleg verðmæti í skúffum landsmanna. Á síðasta ári tók ELKO á móti yfir 4.700 snjalltækjum sem færðu viðskiptavinum yfir 10 milljónir króna í formi inneignar. Það má því með sanni segja að það sé hægt að fá eitthvað fyrir ekkert með því einu að gramsa í skúffunum heima,“ segir Valur Hólm.

Með því að koma öllum þessum gömlu raftækjum aftur í hringrásarhagkerfið má áætla að viðskiptavinir ELKO hafi sparað jörðinni árið 2022 ígildi losunar 225.936 kílóa af koltvísýringi sem jafngildir ígildi bindingar tæplega 11 þúsund fullvaxta trjáa í eitt ár, samkvæmt tölum frá Foxway Group, samstarfsaðila ELKO.

ELKO kaupir gömul raftæki og kemur þeim í ábyrga endurvinnslu.

Endurvinnsluskápar

Í öllum verslunum ELKO má einnig finna endurvinnsluskápa þar sem viðskiptavinir geta komið með smærri raftæki, rafhlöður, blekhylki, ljósaperur, flúrperur og snúrur svo eitthvað sé nefnt.

„Við hjá ELKO sjáum svo um að koma því sem safnast í skápinn í ábyrga endurvinnslu hjá okkar samstarfsaðilum. Allur úrgangur sem fellur til er mældur ár frá ári og er þar notast við stafrænt umhverfisstjórnunarkerfi frá Klöppum sem gefur okkur kost á að rýna betur í þau umhverfisgögn og markmið sem við höfum sett okkur er varða umhverfismál,“ segir Valur Hólm og bætir við:

„Við hvetjum alla til þess að kíkja í skápa og skúffur og draga fram gömul snjalltæki sem hugsanlega eru ekki lengur í notkun og koma með til okkar í ELKO og sjá hvort ekki sé hægt að fá eitthvað fyrir ekkert. Fáðu eitthvað fyrir ekkert og gefðu snjalltæki þínu framhaldslíf sem skiptir máli.“

Nánari upplýsingar má finna á elko.is/eitthvaðfyrirekkert.