fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Kynning

Mikil söluaukning Peugeot rafbíla hjá Brimborg

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 17. ágúst 2020 14:18

Peugeot bílarnir eru glæsileg framtíðareign.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brimborg hefur það sem af er ári afhent og forselt 92 Peugeot rafbíla eða tengiltvinn rafbíla en á sama tíma í fyrra var enginn rafmagnaður bíll í boði frá Peugeot. Það má því með sanni segja að árið 2020 sé algert vendiár í framboði og sölu Peugeot rafbíla en þann 8. ágúst frumsýndi Brimborg enn einn rafbílinn, Peugeot e-2008, 100% hreinan rafbíl. Fyrir voru í boði Peugeot 3008 PHEV tengiltvinn rafbíll og Peugeot e-208 100% hreinn rafbíll ásamt Peugeot 508 PHEV tengiltvinn rafbíl.

Stefna Peugeot bílaframleiðandans er að rafbílavæða allt sitt bílaúrval fyrir árið 2025. Vegferðin hófst með Peugeot 3008 PHEV, fjórhjóladrifnum tengiltvinn rafbíl, næst kom Peugeot e-208 100% hreinn rafbíll sem var kosinn Bíll ársins í Evrópu 2020. Síðan bættist Peugeot 508 PHEV tengiltvinn rafbíllinn við og loks er það nýjasta útspilið, Peugeot e-2008, 100% hreinn rafbíll með jeppalagi, góða veghæð og háa sætisstöðu.

Peugeot e-2008 er nýjasti 100% hreini rafbíll Peugeot

e-2008 rafbíllinn frá Peugeot hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður með jeppalagi, góða veghæð og háa sætisstöðu. Hann er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél, varmadælu sem eykur orkunýtingu og drægni og 50 kWh drifrafhlöðu sem er snögg í hleðslu og skilar 320 km drægni. Að auki er hann búinn fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur þegar lagt er af stað. Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Peugeot e-2008 rafbílinn heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á 7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð og aðeins tekur 30 mínútur að hlaða tóma drifrafhlöðu í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð. Peugeot bílar eru með fimm ára alhliða ábyrgð og rafbílarnir eru að auki með 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Forpöntun á nýjum bílum vinsæl

Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Nú eru 85,7% þeirra Peugeot rafbíla sem eru að koma til landsins á næstum vikum seldir og 61,5% þegar horft er til næstu 12 vikna. Vegna aukinnar eftirspurnar vinnur Brimborg að því að útvega fleiri framleiðslupláss.

Nánari upplýsingar um Peugeot er að finna á vef Peugeot á Íslandi peugeotisland.is, hjá sölustjóra Peugeot á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 5157802.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7