fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Þjóðleikhúsið auglýsir eftir leikritum fyrir börn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 26. febrúar 2020 10:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

  • Þjóðleikhúsið vill efla starfsemi leikhússins í þágu barna
  • Hvetur til ritunar nýrra íslenskra barnaleikrita

 
Þjóðleikhúsið vill efla starfsemi leikhússins í þágu barna og hvetja til ritunar nýrra, íslenskra barnaleikrita. Leikhúsið auglýsir því eftir nýjum leikritum fyrir börn, annars vegar fyrir Stóra sviðið og hins vegar fyrir Kassann eða Kúluna.

Höfundarlaun verða greidd samkvæmt samningi Þjóðleikhússins við Rithöfundasamband Íslands, en hlutfallsgreiðsla verður greidd vegna styttri verka.

Óskað er eftir handritum í fullri lengd eða vel útfærðum hugmyndum að leikritum, með sýnishorni af leiktexta. Stutt lýsing á verkinu, 1-2 bls., skal fylgja, þar sem fram kemur persónufjöldi, atburðarás og ætlunarverk höfundar. Einnig skal fylgja stutt ferilskrá höfundar.

Leikrit og hugmyndir að leikverkum skulu sendar á netfangið leikritun@leikhusid.is merktar „Leikrit fyrir börn“. Umsóknarfrestur er til og með mán. 23. mars 2020.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum