fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Árið fer vel af stað hjá Heklu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 10. febrúar 2020 13:58

Audi etron.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Volkswagen eru efstir á fólksbílamarkaði!

Óhætt er að segja að árið fari vel af stað hjá Heklu sem er í efsta sæti í sölu vistvænna bifreiða í janúar með 39,4% af seldum nýjum vistvænum bílum. Fyrirtækið er með umboð fyrir gæðamerkin Audi, Volkswagen (fólksbíla og atvinnubíla) Skoda og Mitsubishi og eru höfuðstöðvar þess við Laugaveginn. Volkswagen er með flestar nýskráningar fólksbifreiða í janúar eða 13,5% markaðshlutdeild. Vörumerkið Volkswagen er líka með flestar nýskráningar á heildarmarkaði fólks- og sendibifreiða í janúar, eða 107 bifreiðar í heildina og 13% markaðshlutdeild.

Meðal hreinna rafbíla slær Audi öðrum merkjum við með 20,3% sölu en þar spila bræðurnir Audi e-tron 50 og Audi e-tron 55 stærsta hlutverkið. Meðal tengiltvinnbíla vermir Mitsubishi efsta sætið með rúmlega 29% markaðshlutdeild og er einnig næst stærsta merkið í sölu til einstaklinga. Mitsubishi Outlander er áfram mest seldi bíllinn til einstaklinga, rétt eins og árið 2019. Nýskráðir metanbílar koma alfarið frá Heklu en þar skipta Volkswagen og Skoda með sölunni með sér.


Volkswagen og Mitsubishi eru í öðru og þriðja sæti í skráningum til einstaklinga og fyrirtækja. Hekla í heild er í öðru sæti í flestum skráningum í janúar með 206 bifreiðar, eða tæpa 25% hlutdeild á heildarmarkaði. Þá var Volkswagen Polo mest seldi fyrirtækjabíllinn í janúar.

Árið framundan er spennandi hjá Heklu en mikið af nýjungum eru væntanlegar og þar má helst nefna nýjan Skoda Superb iV sem er fyrsti tengiltvinnbíllinn frá Skoda og færir merkið inn í rafmagnaða framtíð. Bíllinn er væntanlegur til landsins áður en febrúarmánuður er úti og bíða Skoda aðdáendur spenntir. Volkswagen eykur enn við úrval rafmagnaðra bifreiða á sumarmánuðum með tilkomu ID. rafbílalínunnar og ný og uppfærð T6.1 lína Volkswagen atvinnubíla sem inniheldur Caravelle, Multivan og Transporter er nú þegar á leiðinni á landsins.

Skoda Superb iV.

„Við hjá Heklu höfum undanfarin misseri lagt mikið á okkur til að festa okkur enn frekar í huga fólks sem vistvæna umboðið fyrir bíla. Við erum sífellt að auka úrvalið og erum við heppin að merkin sem við seljum samræmast okkar framtíðarhugsjón. Þá höfum við líka lagt mikið í vefverslun aukahluta Heklu sem hefur í dag upp á að bjóða mörg þúsund aukahluta fyrir okkar merki, reiðhjól, bílstóla og margt fleira á góðu verði. Einnig hefur sýningarsalurinn okkar á netinu sem opnaði á síðasta ári stigvaxið í heimsóknum sem er einkar ánægjulegt og gerir fólki kleift að skoða úrvalið okkar hverju sinni hvenær sem er sólarhringsins og heiman úr stofu. Allt þetta spilar skemmtilega saman og hefur skilað okkur á þann góða stað sem við erum á í dag,“ segir Hjördís María Ólafsdóttir vörumerkjastjóri hjá Heklu.

Hekla.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum