fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Finnskíslenskir dagdraumar í Norræna húsinu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 6. mars 2020 11:00

Susanna Majuri, Children and sky (2017).

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norðurlandaþjóðirnar Finnland og Ísland kallast á yfir hafið í glæsilegri myndlistarsýningu í Norræna húsinu. Land handan hafsins, eða Maa meren takana,  eins og hún nefnist á finnsku. Sýningin var opnuð þann 24. janúar og lýkur 5. apríl næstkomandi.

Verkin á sýningunni eru eftir fimm ólíka finnska listamenn. Verkin eru í ólíkum miðlum, þar á meðal eru vídjóverk, málverk, skúlptúrar og fleira.  En í verkunum slá þessir ólíku listamenn saman í takt sem tengir ekki bara Finnana fimm, heldur líka Íslendinga og Finna yfir hafið kalda. Stofnunin Pro Artibus er framleiðandi sýningarinnar og sýningarstjóri er Juha-Heikki Tihinen. Sýningin var sett saman í framhaldi af samsýningu íslenskra samtímalistamanna, By Water – Icelandic artists on the shores of Finland, sem var sett upp í Helsinki og Tammisaari 2016.

Eriks Creutziger (f. 1982): Fantasían getur vissulega verið flótti frá veruleikanum, en hún er engu að síður hæfileikinn til að prófa eitthvað allt öðruvísi. Í málverkum sínum tjáir listamaðurinn fegurð og gildi margræðninnar.

Marjo Levlin (f. 1966): Fortíð og nútíð fléttast saman í ljóðrænu verki sem endurspeglar napran veruleika innflytjenda sem dreymir um betra líf. Sögumaður verksins er í fyrstu persónu og tekur okkur með sér í ferðalag þar sem frásögnin rennur inn í nútímann.

Carl Sebastian Lindberg (f. 1978): Langafi listamannsins barðist með þeim sem lutu í lægra haldi í finnsku borgarastyrjöldinni. Fangavist hans í herbúðum óvinarins risti djúp sár í Lindberg-fjölskylduna. Verkið kallar fram áleitnar spurningar um vald ríkisins gagnvart einstaklingnum og það hvernig saga þjóðar og einstaklinga fléttast saman.

Susanna Majuri (f. 1978): Susanna fléttar saman í ljósmyndum sínum ólíka heima og afhjúpar í þeim augnabliksnánd. Hinn sanni viðmiðunarrammi liggur handan þess sem blasir við okkur. Ljósmyndir Susönnu draga fram draumkenndan og dulúðugan heim og sýnir okkur inn í fjölmörg lög veruleikans.

Pauliina Turakka Purhonen (f. 1971): Vinnur þrívíð textílverk og sækir innblástur í bernskuminningar og miðaldaskúlptúra. Hún ögrar okkur um leið og hún kannar efnisáferð og listasöguna. Hún notar andlit sitt og ástvina sinna sem myndefni í stórkostlegum sviðsmyndum sem draga upp margbrotna tilveru milli himnaríkis og helvítis.

Pauliina Turakka Purhonen.

Sameiginlegir draumar hinum megin við hafið

Með samslætti listamannanna minnir sýningin Land handan hafsins á tangólag. Það vill líka svo til að Satumaa (Land draumanna) er nafn á vinsælum finnskum tangó þar sem sungið er um undursamlegan og óljósan stað sem alla dreymir um að komast til, sem er einmitt eitt af stefum sýningarinnar. Í verkunum veita listamennirnir áhorfandanum innsýn í drauma sína og hugmyndir um betri heim. „Það tengja allir við þetta stef því okkur dagdreymir jú öll, hvort sem við erum íslensk, finnsk, barnung eða gömul. Finnarnir deila með okkur vetrarmyrkrinu, kuldanum og einangruninni sem fylgir því að vera eyja úti í miðju Atlantshafi. Þrátt fyrir að vera hluti af meginlandinu er Finnland þó eins og eyja í útjaðri Skandinavíu. Þeim þykir jafnskemmtilegt og okkur að segja sögur og fantasera í myrkrinu um sumarið og hlýja staði. Þráin eftir hinu hlýja, bjarta og exótíska er það sem sameinar okkur,“ segir Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Norræna hússins.

 

Land handan hafsins er sýnd í Hvelfingunni í Norræna húsinu. „Starf Norræna hússins snýst um að taka þátt í norrænni samfélagsorðræðu. Hvelfingin er nýuppgert sýningarrými á neðri hæðinni þar sem ætlunin er að kynna Íslendingum norrænar listir og menningu og Land handan hafsins er liður í þeirri starfsemi.“

Finnska listamannasveitin Vieno Motors, sem stofnuð var af listamanninum Ilonu Valkonen, framkvæmdi anarkískan blómagjörning við opnun sýningarinnar við mikinn fögnuð sýningargesta. Byggingardót úr framkvæmdunum á salnum ásamt lifandi blómum voru efniviður þessa listagaldurs.

Fyrir framan sýningarrýmið hefur Norræna húsið sett upp fallega verslun með norrænum hönnunarvörum. „Litla hönnunarbúðin okkar er sífellt að breytast og vaxa. Margt af því sem fæst hjá okkur fæst ekki svo greiðlega annars staðar á Íslandi.

Þá erum við með töluvert af skemmtilegri finnskri hönnun sem eykur vægi þessarar áhugaverðu sýningar. Þar má nefna handgerða skartgripi og vefnaðarvörur að ógleymdum klassískum hönnunarvörum frá finnska hönnunarmerkinu Artek, sem Alvar Alto stofnaði á sínum tíma.“

Sýningin hentar afar breiðum aldurshóp, bæði börnum og fullorðnum. Opið er á sýninguna á opnunartíma Norræna hússins, þriðjudaga–sunnudaga frá kl. 10–17. Frítt er inn á sýninguna. Leiðsögn og vinnusmiðjur fyrir börn fara fram um helgar.

 

Leiðsögn fyrir fullorðna

Laugardaginn 7. mars kl. 14.00–14.30  (Á ensku)

Laugardaginn 14. mars kl. 14.00–14.30 (Á íslensku)

Laugardaginn 21. mars  kl. 14.00–14.30 (Á ensku)

Laugardaginn 28. mars kl. 14.00–14.30 (Á íslensku)

Laugardaginn 4. apríl kl. 14.00–14.30 (Á ensku)

 

Vinnusmiðjur fyrir börn

Sunnudaginn 8. mars kl. 14–15.30

Sunnudaginn 22. mars kl. 14–15.30

Sunnudaginn 29. mars kl. 14–15.30

Sunnudaginn 5. apríl kl. 14–15:30

MATR í Norræna húsinu. Árni Ólafur Jónsson og Guja Sandholt kona hans.

Matr í Norræna húsinu

Þriðjudaginn, 3. mars, opnaði MATR, huggulegt og fjölskylduvænt kaffihús í Norræna húsinu. Kaffihúsið er rekið af Árna Ólafi Jónssyni, kokki og sjónvarpsmanni, sem margir kannast við úr matarþáttunum Hið blómlega bú. Kaffihúsið er eins árs tilraunaverkefni þar sem Árni ætlar að kanna hversu langt hann getur farið með hugtakið ruslfrítt. Áhersla er lögð á notalegheit, norræna matargerð, nýtni og virðingu við hráefni.

Í Norræna húsinu er að finna samnorrænt bókasafn með dásamlegri barnabókadeild. Þess má geta að gegn framvísun bókasafnsskírteinis Norræna hússins fæst 10%  afsláttur bæði hjá MATR og í hönnunarbúðinni.

Nánari upplýsingar um sýninguna Land handan hafsins, sem og dagskrá fyrir komandi sýningar, má nálgast á vefsíðu Norræna hússins, nordichouse.is

Einnig bendum við fólki á að fylgjast með okkur á samfélagsmiðlum þar sem við auglýsum nýjar sýningar. Facebook: Nordic house Rvk og Instagram: Nordic house Iceland

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum