fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Kynning

Hágæða gluggatjöld frá Bólstraranum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 21. febrúar 2020 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bólstrarinn við Langholtsveg var stofnaður 1944 af Gunnari V. Kristmannssyni. Í dag er fyrirtækið rekið af syni hans, Hafsteini Gunnarssyni, og má með sanni segja að fyrirtækið sé með landsins mesta úrval af áklæðum, gluggatjöldum og veggfóðri. „Við bjóðum upp á gríðarlegt úrval af  ýmiss konar gæðaefnum frá fremstu framleiðendum heims. Við erum algerlega óhrædd við að flytja inn dýrari efni því það hefur komið á daginn að fólk vill frekar fá góð efni sem endast vel, og er tilbúið til þess að borga aðeins meira til þess að upplifa alvöru gæði og góða endingu,“ segir Hafsteinn.

 Bólstrarinn

Veglegt velúr

„Stöðugt eru að koma nýjar tegundir bæði af klassískum efnum og tískuefnum og hefur velúr til dæmis verið að koma sterkt inn í innanhússhönnun í dag. Við flytjum inn ótrúlega áferðarfallegt velúrefni í hæsta gæðastaðli frá ROMO sem er textílfyrirtæki í fremstu röð með dýr og flott efni,“ bendir Hafsteinn á. Bólstrarinn býður einnig upp á fjölbreytt úrval af veggfóðri frá þekktustu merkjum í Evrópu. Og að sjálfsögðu, eins og nafnið gefur til kynna, býður Bólstrarinn upp á fyrsta flokks bólstrunarþjónustu.
Bólstrarinn

 

Gluggatjöld í öllum heimsins litum, stærðum og áferð

Bólstrarinn þjónustar hvort sem er einstaklinga, arkitekta eða innanhússarkitekta við innréttingar og nýbyggingar. „Fólk er mikið til að velja gluggatjaldaefni sem hefur góða hljóðdempunareiginleika. Þetta er orðið sérstaklega mikilvægt í nýbyggingum þar sem íbúðir eru hannaðar til þess að vera opnari og rýmri, gólfteppi og annar textíll eru mikið til horfinn og harðari gólfefni eru valin í staðinn. Þetta getur valdið slæmri hljóðvist í íbúðinni og þá verður nauðsynlegt að velja hágæða gluggatjöld sem minnka bergmál,“ segir Hafsteinn.
Bólstrarinn

 

Bólstrarinn býður upp á fjölmargar prufubækur sem hægt er að fá lánaðar heim þegar velja skal rétta efnið. „Það er eiginlega nauðsynlegt að fara með efnið heim til þess að skoða það í þeirri birtu sem er í rýminu og sjá það í samhengi við það sem er þar fyrir,“ segir Hafsteinn. Bólstrarinn býður einnig upp á þá þjónustu að fá fagaðila heim til þess að taka mál, ráðleggja við val á gluggatjöldum og jafnvel hjálpa til við uppsetningu þegar þar að kemur.
Bólstrarinn

 

Nánari upplýsingar má nálgast á www.bolstrarinn.is
Bólstrarinn er staðsettur að Langholtsvegi 82
Sími: 568-4545
bolstrarinn@islandia.is
Opnunartími: mán–fös 09.00–18.00

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
19.02.2024

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri