fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Kjötbúðin: Grillaðu eitthvað gott í sumar!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 25. maí 2019 18:00

Geir Rúnar Birgisson segir að gæðin felist í fitunni!

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjötbúðin á Grensásvegi er algert ævintýraland fyrir sælkerann og kjötætuna því þar má finna úrvalskjöt í borðinu beint frá bónda. „Bóndinn þarf auðvitað alltaf að senda sína gripi í sláturhús og þaðan kaupum við okkar kjöt. Svo úrbeinum við nautaskrokka og vinnum þá niður sjálfir,“ segir Geir Rúnar Birgisson kjötiðnaðarmeistari sem tók við rekstri verslunarinnar áramótin 2010/2011 og hefur rekið hana síðan.

 

Kjötið látið meyrna

Allir nautavöðvar hjá Kjötbúðinni eru látnir hanga í minnst fjórar vikur áður en þeir fara í kjötborðið. „Það gerir kjötið enn meyrara undir tönn. Einnig veljum við feitari gripi til okkar sem að gerir kjötið enn bragðmeira, „því í fitunni felast gæðin“, eins og við segjum alltaf.“

Sósa og salat

„Einnig erum við erum með mikið úrval af meðlæti í versluninni eins og kartöflurétti, kartöflusalöt og heitar og kaldar sósur sem við gerum sjálf eftir okkar uppskrift. Einnig erum við með úrval af forréttum og eftirréttum, m.a. eina bestu frönsku, blautu súkkulaðiköku á markaðnum, en hún hefur selst í tonnatali hjá okkur. Svo erum við með gott úrval af elduðum réttum til upphitunar sem verða sífellt vinsælli.“

 

Hálfir skrokkar og heilir

„Við hjá Kjötbúðinni sérhæfum okkur í úrvalsnautakjöti og bjóðum viðskiptavinum okkar upp á að panta stærri pakka af kjöti, hvort sem um er að ræða hálfa eða heila skrokka, kjöt- og grillpakka og margt fleira. Þessir pakkar eru pantaðir með fimm daga fyrirvara og við pökkum hverju stykki fyrir sig eins og kúnninn vill fá það, því ekki eru allar fjölskyldur jafn stórar og því er skammturinn misstór í hvert sinn.“

 

Úrvals grillpakkar í veisluna

„Grillpakkarnir okkar hafa heldur betur slegið í gegn og eru alveg tilvaldir í garðveisluna í sumar. Þeir eru sóttir til okkar og allt er tilbúið til eldunar. Þá er einnig hægt að fá þá foreldaða til þess að stytta eldunartíma. Þá er hægt að fá ýmist nautakjöt, nautaborgara, svín, lamb eða kjúkling, salat, kartöflur og sósur fyrir stóra sem smáa hópa. Skoðaðu vefsíðuna okkar og sjáðu úrvalið. Markmið okkar er að vera með 100% gæðahráefni og því er 100% nautakjöt í borgurunum okkar og engum aukaefnum blandað við. Einnig bjóðum við upp á að fá grænmetisbuff í staðinn fyrir kjöt í grillpökkunum,“ segir Geir.

 

Kjötbúðin er staðsett að Grensásvegi 48, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má nálgast á kjotbudin.is

Einnig er hægt að fylgjast með tilboðum og fleiru á Facebook: Kjötbúðin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum