fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

CodeLab: Allt á milli himins og jarðar í hugbúnaði

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 13. maí 2019 12:00

Theódór Magnússon, eigandi CodeLab.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

CodeLab útbýr sérsniðnar hugbúnaðarlausnir út frá þörfum viðskiptavinarins. „Við gerum í rauninni allt á milli himins og jarðar, þ.e. hugbúnaðarlega séð. Við setjum upp og hönnum vefsíður og vefverslanir, hönnum snjallsímaöpp, vefkerfi, hreyfiauglýsingar, erum í grafískri vinnslu og svo margt fleira. Það er fullt af fólki þarna úti með flottar vörur til sölu eða frábærar hugmyndir um stórsniðug snjallsímaöpp í kollinum. Við hjálpum viðskiptavinum okkar að koma hugmyndum sínum og vörum á framfæri til umheimsins og sjáum til þess að lausnin sé einföld, falleg og uppfylli ströngustu kröfur,“ segir Theódór Magnússon, eigandi CodeLab.

 

Ferlið frá a-ö

Þegar kemur að því að hanna hugbúnaðarvöru er ferlið á eftirfarandi hátt:

  • Fyrsta skrefið er náttúrulega að hafa samband við okkur hjá CodeLab. Við greinum ítarlega þarfir viðskiptavinarins og högum allri vinnu sem kemur í kjölfarið eftir þeirri greiningu.
  • Næst förum við í það að setja fram hönnun á hugbúnaði, vefsíðu eða hvað það er sem kúnninn sækist eftir. Þá er búin til prótótýpa sem er auðvelt að breyta og bæta þar til fullbúin hönnun er sett fram.
  • Þriðja skrefið er forritun, en eftir greiningu og hönnun er hægt að taka ákvörðun um það hvaða forritunarmál og kerfi verður notast við. Áður en hægt er að demba sér í kóðun þarf alltaf að stilla upp viðeigandi skipulagstólum svo hægt sé að þróa kerfið eftir SCRUM aðferðafræði.
  • Nú halda flestir að hugbúnaðarvaran sé tilbúin, en svo er ekki. Lokaskrefið er alltaf að gera prófanir og skjölun. Prófanir koma t.d. í veg fyrir alls kyns vandamál þegar kerfið stækkar og skjölunin tryggir að kaupandi fái bæði notenda- og tæknileiðbeiningar sem lýsa eiginleikum kerfisins á einfaldan og auðskiljanlegan hátt.

Breiður hópur viðskiptavina

„Viðskiptavinahópur CodeLab er afar fjölbreyttur enda bjóðum við uppá ákaflega breiða þjónustu og erum með afar færa forritara og hönnuði á okkar snærum. Okkar mottó er að við gerum allt. Viðskiptavinur kemur til okkar með hugmynd eða vandamál og við búum til langtímalausn sem hentar kúnnanum. Þess má geta að við bjóðum upp á verkefnagreiningu viðskiptavininum að kostnaðarlausu,“ segir Theodór.

 

Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni codelab.is. Þar er einnig hægt að hafa samband við okkur ef þú vilt fría verkefnagreiningu!

CodeLab ehf. er staðsett að Katrínartúni 2, 16. hæð, 105 Reykjavík.

Netpóstur: codelab@codelab.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum