fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Tónskóli Hörpunnar tvítugur í ár

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 6. desember 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónskóli Hörpunnar var stofnaður árið 1999 og varð því 20 ára á þessu ári og var afmælinu fagnað með glæsilegum tónleikum í Grafarvogskirkju í apríl. Þar komu fram nemendur ásamt núverandi og nokkrum fyrrverandi kennurum tónskólans.

 

Jólatónleikar nemenda

Nú er komið að árlegum jólatónleikum Tónskóla Hörpunnar. Tónleikarnir verða haldnir 9., 10. og 11. desember kl. 18.30 og 19.30. Þeir eru haldnir í kirkjuselinu í Borgum í Spönginni þar sem allir nemendur skólans koma fram. Allir gestir eru velkomnir og enginn aðgangseyrir.

Kennsla innan veggja grunnskólanna á skólatíma

Síðan tónskólinn var stofnaður hefur eitt og annað breyst. Skólinn hefur flutt í stærra og betra húsnæði, nemendum hefur fjölgað og við höfum tekið upp kennslu innan veggja grunnskólanna þar sem við kennum á morgnana. Í vetur förum við í átta skóla en það eru Kelduskóli Vík og Korpa, Vættaskóli Engi og Borgir, Húsaskóli, Sæmundarskóli, Ártúnsskóli og Háaleitisskóli í Álftamýri.

 

Fjölbreytt hljóðfæraflóra

Tónlistarnám styður við allt annað nám og rannsóknir sýna að þeir sem stunda ungir tónlistarnám búa að því alla ævi. Fyrir utan hvað tónlist veitir mikla gleði í lífi hvers og eins. Við erum aðallega með nemendur á grunnstigi og nokkra á miðstigi. Það eru allir velkomnir í Tónskóla Hörpunnar og enginn er of gamall til að hefja tónlistarnám. Tónlistarnám er ekki bara fyrir útvalda heldur ættu allir að fá tækifæri til að kynnast tónlist einhvern tímann á lífsleiðinni. Fyrir nemendur sem hafa áhuga á að hefja tónlistarnám er margt í boði. Við kennum á píanó og gítar sem eru vinsælustu hljóðfærin. Einnig kennum við söng, á fiðlu, þverflautu, saxofón, bassa, trommur, harmoniku og svo blokkflautu í forskólanum.

Sumir hefja nám um áramót

Tónskóli Hörpunnar er staðsettur í Spönginni sem er í hjarta Grafarvogs. Það er afar góð staðsetning fyrir nemendur sem búa í Engja-, Víkur-, Borgar- og Rimahverfi, enda er stutt fyrir þá að ganga í tónskólann. Skólinn gefur nýjum nemendum tækifæri til að hefja nám um áramót. Innritun fer fram á vef borgarinnar Rafræn Reykjavík.

Innritun fyrir vorönn 2020 er hafin á vefnum rafraen.reykjavik.is.

Nánari upplýsingar má nálgast á harpan.is eða í síma 567-0399.

Vefpóstur: harpan@harpan.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum