fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Íslenska Flatbakan: Góðar pítsur handa svöngum Íslendingum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 1. desember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pítsur þurfa ekki að vera óhollar en þær þurfa alltaf að vera góðar. Á Íslensku Flatbökunni er boðið upp á mikið úrval af hollum og ljúffengum pítsum. Allar pítsurnar eru úr súrdegi og einstaklega léttar í maga. Einnig bjóðum við upp á glúteinskertan pítsubotn fyrir þá sem eru með glúteinóþol. En þeir sem vilja halda sínum pítsum vel hlöðnum af alls konar girnilegu áleggi geta á treyst því að pítsurnar á matseðlinum eru vel útilátnar með nógu af áleggi.

Nettilboð Íslensku Flatbökunnar

Íslenska Flatbakan hefur opnað fyrir netpantanir á sínum víðfrægu pítsum. „Við erum líka með sérstök nettilboð í gangi fyrir þá sem panta á netinu. Þá er hægt að fá t.d. eina böku með tveimur áleggjum, ostabröllur og sósu á eingöngu 3.600 kr. Svo kemurðu bara og sækir bökuna þegar hún er tilbúin.“

Íslendingar elska góðar pítsur

Íslenska Flatbakan er fjölskyldurekinn veitingastaður sem var opnaður árið 2015. Íslendingar eru greinilega komnir á bragðið því fyrirtækið opnaði í sumar nýtt útibú í Mathöllinni á Höfða og hefur verið nóg að gera hjá pítsugerðarmeisturum Íslensku Flatbökunnar í bæði Bæjarlind og á Bíldshöfða. „Stemningin er frábær og er húsið venjulega fullt í hádeginu og stöðugur straumur á kvöldin. Við finnum að fólk er að fíla að geta komið og sumir fá sér pítsur á meðan aðrir eru skella sér á annan stað,“ segir Guðmundur Gunnlaugsson, meðeigandi að Íslensku Flatbökunni.

Eldbakað af alúð!

Geggjuð tilboð í hádeginu:

Pítsa með tveimur áleggstegundum og gos á aðeins 1.990 kr.

Pítsa af matseðli á aðeins 2.200 kr.

Tvær vinsælustu vegan-pítsurnar eru:

Sú Ferska: Súrdeig, pítsusósa, vegan-ostur, döðlur, hvítlaukur, klettasalat, ferskir tómatar, ferskur rauðlaukur, spicy mayo og svartur pipar.

Sú Fullkomna: Súrdeig, pítsusósa, vegan-ostur, döðlur, hvítlaukur, sveppir, þistilhjörtu, salthnetur, basil og sjávarsalts- og oreganóblanda.

 

Ekkert mál að vera vegan á Íslensku Flatbökunni

Íslenska Flatbakan er með landsins mesta úrval af vegan-pítsum og vegan-forréttum. Er hún með fyrstu veitingastöðum sem buðu upp á vegan-valmöguleika á matseðlinum. Pítsurnar á Íslensku Flatblökunni henta einstaklega vel þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í átt að vegan-lífsstíl en vilja verðlauna sig með gómsætum mat af og til. Pítsurnar geta verið ótrúlega léttar og ferskar en einnig vel útilátnar og toppaðar með alls konar sósum eða olíum. Þeir sem vilja breyta aðeins til geta líka prófað forréttina eða eftirréttina sem eru margir hverjir vegan.

Íslenska Flatbakan er til húsa að Bæjarlind 2 í Kópavogi og í Mathöll á Höfða, Bíldshöfða 9, 109 Reykjavík.

Pantaðu pítsu á netinu! Matseðil og fleiri upplýsingar er að finna á vefsíðunni flatbakan.is.

Sjá einnig Facebook-síðuna: Íslenska Flatbakan.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum