fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Kynning

Eldhaf: Hafsjór af veglegum jólagjöfum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 29. nóvember 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eldhaf fagnaði nýlega 10 ára afmæli og hefur alla tíð sérhæft sig í sölu á Apple-vörum. Við erum með beinan innflutning á þeim vörum og erum að auka umsvif okkar í heildsöludreifingu og gera fyrirtækjaþjónustu okkar enn öflugri. Verslun Eldhafs rekum við að Glerártorgi og höldum úti vefversluninni eldhaf.is

Það er gaman að segja frá því að eldhaf.is er fyrsta íslenska vefverslunin þar sem þú getur greitt með Apple Pay og hefur sala aukist til muna eftir að við innleiddum þann greiðslumöguleika.

 

Apple vörur eru alltaf gríðarlega vinsælar í jólapakkann en við erum einnig að selja vörur frá Garmin, Leatherman, Bose og fl. 

Það sem verður vinsælast þessi jólin eru vörur eins og AirPods og AirPods Pro, Apple Watch er mjög vinsælt ásamt öðrum Apple-vörum eins og iPad, iPhone og tölvum.

Garmin-vörurnar hafa mokast út seinustu árin og þá sérstaklega heilsuúrin, þau koma sterk inn núna fyrir jólin og eigum við margar nýjar tegundir.

Leatherman-vörurnar hafa alltaf verið sígildar í jólapakkann enda frábær verkfæri með 25 ára ábyrgð og gleðja nánast alla.

Bose var að kynna ný „noice canceling“-heyrnartól innan 700 línunnar frá þeim sem er viðbót við Bose QC-35II sem flestir kannast við.

Það verður mikið um tilboð og endilega kíkið í vefverslun okkar og skoðið hvað er í boði. Okkar reynsla er sú að vinsælustu Apple-vörurnar eru nánast alltaf uppseldar seinustu dagana fyrir jól, þannig að það er oft betra að vera tímanlega í jólagjafakaupum. Oft erum við líka að bjóða betra verð en aðrir á ýmsum vörum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
26.10.2025

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld
Kynning
25.10.2025

BRASA opnar í hjarta Kópavogs – Jólaveisla sælkerans hefst í nóvember

BRASA opnar í hjarta Kópavogs – Jólaveisla sælkerans hefst í nóvember
Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
06.05.2025

Boozt kynnir einstaka húsgagnalínu

Boozt kynnir einstaka húsgagnalínu