fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Svellköld og ógleymanleg upplifun í jólagjöf!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 18. október 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er einstök tilfinning að þeysast um á snjósleða uppi á jökli í góðu veðri með útsýni í allar áttir. Mountaineers of Iceland er eitt framsæknasta fyrirtæki á Íslandi sem býður upp á snjósleðaferðir upp á Langjökul. Fyrirtækið var stofnað árið 1996 af Herberti Haukssyni og Ólöfu Einarsdóttur og hefur heldur betur sótt í sig veðrið á síðustu áratugum. „Snjósleðaferðirnar eru farnar allt árið um kring enda er alltaf gaman að koma á jökulinn, hvort sem er í glaðasólskini eða kyngjandi snjó,“ segir Haukur , sonur Herberts, hjá Mountaineers of Iceland.

Eitursvöl upplifun

„Langflestir gestir okkar eru erlendir ferðamenn og snjósleðaferðirnar vekja gríðarlega lukku hjá þeim. Margir hverjir minnast á að þetta hafi verið það langskemmtilegasta sem þeir hafi upplifað á ferðum sínum um Ísland. Upp á síðkastið hafa Íslendingar verið duglegri að koma ferðir með okkur, margir hverjir forvitnir um hvað það sé eiginlega sem dragi útlendingana upp á ískalda jökulbreiðuna. Þeir koma sjaldnast samir til baka enda er um að ræða upplifun og landslag sem er alls ekki að finna hvar sem er.“

Jökull í jólagjöf

Jöklar eru eitt mikilfenglegasta náttúrufyrirbrigði sem Ísland býr yfir og að koma upp á einn slíkan er alveg einstök tilfinning sem er ekki hægt að líkja við nokkuð annað. „Það getur varla verið til betri hugmynd að jólagjöf en þessi einstaka tilfinning, að standa ofan á kílómetra þykkum ísklumpi sem byrjaði að myndast fyrir sjö þúsund árum, ég tala ekki um að halda svo inn í jökulinn.“

Flestar ferðir byrja á bílaplaninu við Gullfoss þar sem farþegar fara með Mountaineers-fjallatrukknum eftir Kjalvegi og upp að Mountaineers-skálanum í Skálpanesi við jökulrætur Langjökuls. Þaðan er haldið í snjósleðaferðirnar.

Glacier Ice Cave & Snowmobile: Ævintýri inni í jökli

Einn af þeim túrum sem hafa verið hvað vinsælastir hjá íslenskum ferðamönnum er Glacier Ice Cave & Snowmobile. Þessi fjögurra klukkustunda túr er eins konar „ein með öllu“ þar sem gestir koma upp á jökulinn, þeysast um hann á snjósleða og ganga svo inn í hann. „Hóparnir eru um 10–20 manns. Fólkið er sótt á bílaplanið hjá Gullfossi á Mountaineers-fjallatrukknum okkar sem ferjar alla upp að skála.

Þaðan er haldið með leiðsögumanni á snjósleðum að íshellinum sem við grófum út í sumar. Hellirinn er staðsettur í yfir þúsund ára gömlu íslagi á jöklinum og er það neðarlega að ísinn er orðinn alveg þéttur og nærri því glær undan þrýstingnum. Þar má meðal annars greina nokkur einkennandi öskulög frá sögufrægum eldgosum sem jöklaleiðsögumaðurinn okkar mun glaður fræða gestina um.“

Meet us at Gullfoss

„Þessi ferð er langvinsælasta ferðin okkar, bæði hjá Íslendingum og erlendum ferðamönnum. Hér er um að ræða stórskemmtilega snjósleðaferð sem að sjálfsögðu byrjar í risatrukknum á bílaplaninu við Gullfoss. Frá skálanum okkar við Langjökul er svo haldið í ógleymanlega snjósleðaferð. Sleðarnir eru tveggja manna og er auðvelt að stýra þeim og henta þeir því bæði fyrir algera byrjendur og líka þá sem eru örlítið lengra komnir.“

Glacier Rush

„Fyrir þá sem eru vanir snjósleðum mælum við eindregið með Glacier Rush-túrnum. Hóparnir eru töluvert minni en í Meet us at Gullfoss-túrnum, eða aðeins um 2–10 manns. Sleðarnir eru eins manns og því mun meðfærilegri. Einnig eru þeir töluvert kraftmeiri eða um 140 hestöfl og því er farið mun hraðar yfir. Ef þú ert öruggur á snjósleða og langar að þeysast um víðáttur Langjökuls, þá er þetta klárlega túrinn fyrir þig.“

Við seljum gjafabréf í allar ferðirnar okkar og á vefsíðunni mountaineers.is bjóðum við upp á enn fleiri túra. Til þess að nálgast gjafabréfin má senda vefpóst á ice@mountaineers.is eða hringja í síma 580-9900.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum