fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Kynning

Ban Kúnn er gífurlega vinsæll: „Íslendingar eru sólgnir í góðan taílenskan mat“

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 7. september 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hér hefur verið mikið að gera frá fyrsta degi og fólk hefur tekið okkur ennþá betur en ég gerði mér vonir um. Fyrst var um að ræða fólk úr hverfinu en svo fór þetta að berast og núna kemur hingað fólks alls staðar að. Við fáum meira að segja pantanir frá erlendum ferðaskrifstofum,“ segir Svavar G. Jónsson hjá Ban Kúnn sem staðsettur er að Tjarnarvöllum 15 í Hafnarfirði.

Staðurinn var opnaður í janúar árið 2014. Meðeigandi Svavars er taílenskur eiginmaður hans, Natthawat Voramool. „Hér er alltaf mikið um að vera í hádeginu enda hverfið líflegt. Hér er stórt iðnaðarsvæði en einnig skrifstofuhúsnæði og Þjóðminjasafnið er flutt hingað við hliðina og það er hótel í götunni,“ segir Svavar.

Sérstakt hádegis- og kvöldverðartilboð er afar vinsælt hjá gestum staðarins. Sex réttir eru á borðinu og má velja þrjá rétti á diskinn. Skipt er um rétti daglega þannig að það er alltaf eitthvað nýtt. Í hádeginu kostar þetta 1.750 kr. en á kvöldin 1.990 kr. sem hlýtur að teljast afar hagstætt verð fyrir svo góðan mat.

Ekta taílenskur matur – eins og staðurinn væri í Taílandi

„Við erum auk þess með 25 rétti á matseðli. Fyrir utan það eru síðan ótal margir sértaílenskir réttir sem við getum eldað. Fólk getur því komið hingað og sagt okkur frá uppáhalds taílenska réttinum sínum og við eldum hann,“ segir Svavar. Að hans sögn er Pad Thai vinsælasti rétturinn á matseðlinum. „Hann inniheldur hrísgrjónanúðlur, grænmeti, kjöt eða rækjur, og síðan er það leyndarmálið sem allir alvöru taílenskir veitingastaðir verða að hafa – en það er sósan,“ segir Svavar. Sósan í réttinum þykir einstök, uppskriftin kemur frá langömmu eiginmannsins, Natthawat, en fjölskylda hans hefur stundað veitingarekstur á Taílandi mann fram af manni.

Að sögn Svavars er það útbreiddur ósiður á taílenskum veitingastöðum á Vesturlöndum að staðfæra réttina og setja eitthvað í þá sem á ekki heima í þeim. Á Ban Kúnn er hins vegar lögð áhersla á að hafa réttina upprunalega, nákvæmlega eins og ef staðurinn væri í Taílandi.

Þess má einnig geta að Ban Kúnn býður upp á margskonar grænmsetisrétti og Vegan-rétti, t.d. er hægt að fá Pad Thai vegan.

Ban Kúnn er opinn virka daga frá kl. 11 til 21 og um helgar (og á frídögum) frá kl. 17 til 21. Svavar segir að vinsældir staðarins kalli eftir að opnað sé fyrr um helgar en hann þurfi að gæta þess að starfsfólkið fái næga hvíld.

„Margir hafa líka kallað eftir fleiri Ban Kúnn-stöðum, í þetta hverfið eða hitt, en ég segi alltaf nei. Við ætlum að vera hér og bjóða áfram góðan mat og persónulega þjónustu. Ban Kúnn þýðir líka „heima hjá þér“ og hér viljum við að fólk hafi það notalegt og því líði eins og það sé heima hjá sér,“ segir Svavar.

Sjá nánar á Facebook-síðunni Ban Kúnn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7