fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Steinasafn Petru – Einstakt einkasafn náttúruunnandans Petru Sveinsdóttur

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 30. júní 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Stöðvarfirði við þjóðveg 1 er eitt af áhugaverðari söfnum landsins, Steinasafn Petru, sem er einkasafn byggt upp af ástríðu Ljósbjargar Maríu Petru Sveinsdóttur. Petra lést 10. janúar 2012, en fjögur börn hennar tóku við rekstri safnsins og halda arfleifð móður sinnar við.

„Við erum steinasafn með fullt af náttúruminjum líka, uppstoppaða fugla, blómagarð og fleira úr náttúrunni. Safnið er nánast eins og hún skildi við það. Húsið sem Petra byggði og bjó í alla ævi ásamt manni og börnum er hér á sama stað og upprunalegt.

Petra var kona sem hafði gaman af náttúrunni, að safna steinum, og fór til fjalla sem ung kona og þótti stórskrýtin fyrir vikið, að fara þangað með þrjú börn og nesti í poka í stað þess að vera heima að elda eða baka. Petra safnaði öllu og því er ýmislegt fleira á safninu en steinarnir.

Systkinin reka einnig lítið kaffihús á staðnum, en það var opnað fyrir þremur árum. „Þetta er lítið og heimilislegt kaffihús þar sem er hægt að fá súpu og brauð, sætt og ósætt bakkelsi. Það er garðskáli sem fólk getur setið í og borðað. Og síðan garðurinn þar sem hægt er að sitja þegar gott er veður.“

Mikið af erlendum ferðamönnum sækja safnið heim, bæði hópar og einstaklingar. Skólahópar koma líka í heimsóknir, sem og Íslendingar.

Steinasafn Petru er að Fjarðarbraut 21, Stöðvarfirði. Síminn er 475-8834.
Safnið er opið 1. maí–15. október frá kl. 9–18 og kaffihúsið frá kl. 10–17.
Heimasíða er steinapetra.is  og safnið er einnig á Facebook.

Uppáhaldssteinn Petru: Agate.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum