fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Kynning

Lín Design – íslensk hönnun: Umhverfisvænar hágæðavörur sem henta vel sem fyrirtækjagjafir

Kynning
Kynningardeild DV
Miðvikudaginn 28. nóvember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lín Design leggur mikið upp úr fyrirtækjaþjónustu þar sem boðið er upp á glæsilegt úrval gjafavöru og faglega þjónustu.

„Lín Design er lífsstílsverslun þar sem falleg hönnun, vandaðar og umhverfisvænar vörur eru í fyrirrúmi. Fyrirtækjasviðið fer stækkandi með hverju árinu og stór sem smá fyrirtæki kjósa að velja vörur frá okkur í jólapakka starfsmanna sinna,“ segir Ágústa, eigandi Lín Design.

„Við bjóðum fyrirtækjum að koma til okkar að skoða vörurnar og handvelja þær í pakkana eða við förum til þeirra með sýningareintök. Við leggjum mikla áherslu á persónulega þjónustu til okkar viðskiptavina.“

Allt frá upphafi hafa fögur rúmföt úr hreinni pima-bómull verði eitt aðalsmerki Lín Design. „Rúmfötin hafa verið sérlega vinsæl til fyrirtækjagjafa. Þau eru úr hreinni pima-bómull, sem er ein sú vandaðasta sem hægt er að fá og öll litun er samkvæmt Oeko-Tex stöðlum. Innblástur að hönnuninni er sóttur í íslenska náttúru og gömul, íslensk mynstur. Við bjóðum einnig upp á rúmföt í smekklegum litum. Fyrirtæki velja gjarnan mismunandi rúmföt fyrir sitt starfsfólk svo jólapakkarnir séu ekki allir eins,“ segir Ágústa.

Ásamt rúmfötum hafa vistvænar dúnsængur og koddar úr andardúni, útsaumuð handklæði og gjafakort verið vinsælar gjafir til starfsmanna.

„Gjafakortin hafa verið góð og þægileg lausn og margir hafa kosið að fara þá leið. Þá getur hver sem er komið í búðirnar okkar og valið sér þá gjöf sem hentar. Við erum með franska gjafavöru, svo sem glös, diska og skrautmuni, svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Ágústa en hjá Lín Design fæst allt til heimilisins.

Sérhönnun að ósk fyrirtækja

Þá sérhannar Lín Design gjafapakkningar fyrir stærri fyrirtæki, sé þess óskað, t.d. með hlýlegri kveðju til starfsmanna. „Allar pakkningar Lín Design eru vistvænar og við notum ekki plast. Rúmfötum er pakkað inn í 40×40 púðaver þannig að hver og einn fær koddaver, sængurver og púðaver,“ segir Ágústa.

Jólapokar með íslenska jólasveininum.

Helsta nýjung Lín Design eru fallegir flöskupokar úr textíl og skemmtilegir jólapokar úr striga, skreyttir með myndum og sögum af íslensku jólasveinunum.

Lín Design tekur á móti fyrirtækjum í versluninni að Smáratorgi 1 fyrir jólin og þar er farið yfir þarfir og óskir hvers og eins varðandi fyrirtækjagjafir.

Nánari upplýsingar fást í síma 533-2220, sala@lindesign.is, www.lindesign.is og á https://www.facebook.com/lindesigniceland/

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
10.11.2025

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði
Kynning
26.10.2025

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld
Kynning
02.09.2025

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ
Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
28.12.2024

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum