fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

STJÖRNUSPÁ 12.–20. MAÍ

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 14. maí 2017 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Núna er tími nautsins, sem er jarðarmerki. Nautið er skynsamt, blítt, duglegt, þrjóskt, heimakært, gæflynt, vingjarnlegt, varkárt, framkvæmdaglatt, friðsamt, rólegt, jarðbundið, nautnabelgur, hlédrægt, áreiðanlegt, náttúrubarn, raunsætt, rólegt, trygglynt, verndandi.

NAUT (20. apríl–20. maí) Jafnvægi og samvinna verður rík hjá nautinu. Töfrar umlykja og tækifærin eru alls staðar. Mikil frjósemi og gróska er framundan. Góðar fréttir eru að koma inn sem boða ýmsa möguleika. Tengjast verkefnum á listasviði eða tilfinningalega. Heimsókn erlendis frá og breytingar eru miklar framundan. Fjölbreytileiki er heilun.

TVÍBURAR (21. maí–20. júní) Markmið og óskir rætast. Mikil ánægja hjá fjölskyldu. Inn kemur frétt sem gagntekur tvíburana og veldur tilfinningaóróa. Gott er alltaf að leita leiða eða ráða til árangurs fyrir sjálfan sig og sína. Passa vel upp á heilsu og svefn. Mikil vernd er yfir breytingum. Nýir möguleikar eru alltaf í stöðunni. Góður árangur er heilun.

KRABBI (21. júní–22. júlí) Fortíðin er mikilvæg, nútíðin meiri en framtíðin allt. Eitthvað úr fortíðinni skýtur upp kolli og hefur jákvæð áhrif á framtíðina. Stjórnsýslan er snúin. Togstreitu gætir, passa vel upp á sig sjálfan. Ástríðufullt ástand, mótbyr, gefur af sér þroska. Passa vel upp á að láta ekki blekkjast. Vernd er yfir fjármálum. Réttlæti er, heilun, nær fram að ganga.

LJÓN (23. júlí–22. ágúst) Treysta innsæi sínu. Forsjónin sér um sína. Erfitt tímabil hefur tekið á og tekur enda. Mikil frjósemi er í kortunum og leiðir af sér margvíslega hluti. Hugrekki er mikið og allar hindranir reknar í burtu. Sumarið verður töfrum líkast. Örlögin sjá um sína. Endurnýjun, passa vel upp á sig og sína. Huliðsöflin eru heilun.

MEYJA (23. ágúst–22. september) Mikil frjósemi kemur hjá meyju og fer inn í sumarið. Passa vel upp á sitt. Fjárhagslegt og tilfinningalegt öryggi ríkir. Nýir samningar eru í farvatninu. Jafnvægi. Góðar fréttir berast fjölskyldu. Gleði ríkir. Trúa, treysta er heilun.

VOG (23. september–22. október) Fjárhagur góður, vellíðan framundan. Hamingjan er rétt handan við hornið. Góðar fréttir af fjármálum koma inn þegar þú sérð nýjar leiðir opnast. Endurnýjun, endurfæðing ríkir, lífið fær aðra umgjörð og þú færð nýjar og ferskar hugmyndir um hvernig skal á málum haldið. Mannkærleikur er heilun.

SPORÐDREKI (23. október–21. nóvember) Frjósemi mikil inn í sumarið. Undirbúningstími er framundan og gætir verndar á þeirri leið hjá dreka. Vernd er yfir fjármálum. Öryggi. Inn kemur frétt sem hefur mikil áhrif. Vandamál leysast. Kaup og sala er ríkjandi hjá fjölskyldunni. Óvæntir hlutir koma inn. Fylgja markmiðum sínum eftir þótt hindranir sýni sig. Gleði og ánægja er heilun.

BOGMAÐUR (22. nóvember–21. desember) Tímamót. Áhyggjur og ábyrgð er rík hjá bogmanni. Bæði á veraldlega sviðinu og því tilfinningalega. En tímamót leiða til verkloka og vandamál leysast. Oft erfitt að taka ákvarðanir en góðar fréttir berast. Örlögin láta ekki að sér hæða. Stjórnsýslan viðkvæm. En fjármál og aðrir þættir leysast vel. Nýir tímar og breytingar er heilun.

STEINGEIT (22. desember–19. janúar) Togstreitu gætir í verklegum þáttum hjá geit. Góðar fréttir koma inn um fjármál. Margir möguleikar sýna sig í stöðunni. Fréttir berast daglega og hafa mismikið vægi. En frétt frá útlöndum kemur inn og hefur áhrif inn í næsta vetur. Frjósemi og inn koma mál úr fortíðinni. Góðar fréttir. Óvæntir hlutir banka upp á. Hindranir hverfa vegna dugnaðar. Treysta innsæi sínu, er heilun.

VATNSBERI (20. janúar–18. febrúar) Stjórnsýsla tekur alltaf á, sérstaklega þegar verklegir þættir og störf eru í húfi. Vernd er sterk yfir fjármálum og erfiðum tímum. Hugrekki og áræði ýtir burtu öllum hindrunum og málin leyst. Lausnir. Mikil frjósemi ríkir inn í sumarið og mikið verður um að vera og mikið verður að gera. Áræði, hugrekki er heilun.

FISKAR (19. febrúar–20. mars) Athafnasemi, elja ríkir og berast inn mörg tilboð. Passa vel upp á sitt. Togstreita. Erfitt að róta í sama beði. Breytt viðhorf leiðir til árangurs. Sumarið kemur sterkt inn. Frjósemi mikil. Mikil vernd er yfir öllum verklegum þáttum. Lausn á vandamálum. Góðar fréttir koma inn frá gamalli tíð. Samvinna, að samræma, samþjöppun er heilun.

HRÚTUR (21. mars–19. apríl) nær settum markmiðum sínum. Hann vinnur sig út úr hindrunum og erfiðleikum. Veit að hann er á réttri leið. Vinnugleði er mikil og ánægja eftir mikla vinnutörn. Fjölskylda nýtur góðs af því. Breytingar, ný ævintýri og að taka áhættu er spenna sem umlykur stöðuna. Togstreita verður um fjármál. Mikil vinna er framundan. Líf og fjör verður á næstunni. Miklir möguleikar eru heilun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum