fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
FókusKynning

Vandaðar vörur, skemmtilegar merkingar – og merkingar á vinnufötum

Kynning

Allt merkilegt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 10. mars 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt merkilegt er lítið og skemmtilegt fyrirtæki sem annars vegar býður upp á merkingaþjónustu og hins vegar selur vandaðar vörur með fallegum og leiftrandi skemmtilegum merkingum. Fólk getur valið sínar eigin merkingar eða valið staðlaða texta. Dæmi um sívinsælar vörur verslunarinnar eru bolir sem á stendur „Ég er að verða stóra systir“ og „Ég er að verða stóri bróðir.“ Annað afar vinsælt eru kjólar með merkingunni „Ef þér finnst ég vera dúlla ættirðu að sjá ömmu mína.“ Þá hafa samfellur með merkingunni „Fjúkk, loksins laus eftir níu mánuði inni“ notið mikilla vinsælda.

Erna Arnardóttir er eigandi fyrirtækisins Allt merkilegt. Hún er grafískur hönnuður að mennt og bera merkingarnar þess vitni. Þær eru í senn smekklegar, áferðarfallegar og afar skemmtilegar. Allt merkilegt er merkingaþjónustufyrirtæki og viðskiptavinir geta bæði valið eigin texta eða notið sköpunargáfu Ernu fyrir merkingar á sínar vörur. Hægt er að koma með eigin boli og láta merkja þá. Einnig selur Allt merkilegt könnur sem viðskiptavinir geta látið merkja að vild, til dæmis með mynd af sér og með hvaða áletrun sem óskað er eftir.

Þrátt fyrir áherslu fyrirtækisins á skemmtilegar merkingar leggur Allt merkilegt mikið upp úr því að selja vandaðar flíkur. Fötin eru þekkt fyrir að endast og halda sér vel.

Allt merkilegt er með vinnustofu og verslun að Garðatorgi 3 en mest er keypt í vefverslun fyrirtækisins á alltmerkilegt.is. Þar eru líka fínar upplýsingar um vörurnar. Í vefversluninni er hægt að velja um lit, stærð, mynd til að prenta utan á vöruna og texta.

Erna og dóttir hennar, Anna Kolbrún, í skemmtilegum bolum
Erna og dóttir hennar, Anna Kolbrún, í skemmtilegum bolum

Greitt er fyrir vörurnar í vefversluninni með korti eða millifærslu, en hægt er að velja um hvort kaupandi fær þær póstsendar eða sækir þær á Garðatorg 3.

Það er gaman að skoða úrvalið á alltmerkilegt.is en viðskiptavinir eru líka velkomnir í verslunina að Garðatorgi 3. Þá er
líka óhætt að segja að verðið sé hagstætt en allt er vandlega verðmerkt í vefversluninni á alltmerkilegt.is

Merkingar á vinnuföt og hentug öryggisvesti á góðu verði

Sérmerkt vinnuföt eru nauðsynleg í ýmsum störfum, ekki síst í þjónustustörfum. Þau auka traust á fyrirtækinu, eru hluti af ímynd þess og geta komið sér vel í ýmsum aðstæðum þar sem greina þarf starfsfólk frá öðrum viðstöddum. Allt merkilegt býður upp á smekklegar og skemmtilegar merkingar á hagstæðu verði, en það fer eftir umfangi merkinganna og fjölda flíka hver kostnaðurinn er. Um hann er samið við viðskiptavininn fyrirfram.

Þetta fer þannig fram að viðskiptavinurinn kemur fötunum til Ernu Arnardóttur, að Garðatorgi 3, og hún sér um að merkja fatnaðinn samkvæmt óskum viðskiptavinarins. Merkingarnar geta til dæmis verið nafn fyrirtækis, símanúmer, heimilisfang eða vefslóð, sem og lógó fyrirtækisins. Allt merkilegt getur merkt ótakmarkaða magn starfsmannafatnaðar.

Allt merkilegt býður líka upp á smekkleg og hentug öryggisvesti sem henta vel fyrir leikskóla og grunnskóla, sem og fyrir ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á norðurljósaferðir. Vestin eru á hagstæðu verði.

Einnig er hægt að fá bolla merkta nafni fyrirtækis og nöfnum starfsmanna.

Allt merkilegt
Garðatorgi 3, Garðabæ
Símanúmer 555-3569
Heimasíða og vefverslun

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7