fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
FókusKynning

Nýtt jólalag með Sigurði Guðmundssyni og Sigríði Thorlacius

Kynning
Berglind Bergmann
Miðvikudaginn 7. desember 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Notalegt er nýtt jólalag með Sigurði Guðmundssyni og Sigríði Thorlacius. Lagið er hluti af hefð sem hefur skapast í kringum árlega Hátíðartónleika Sigurðar og Sigríðar í Hörpu, sem fara nú fram í þriðja sinn þann 20. desember næstkomandi. Áður hafa komið út lögin Hjarta mitt og Freistingar en bæði lögin nutu mikilla vinsælda.

Notalegt er lag sem sannarlega stendur undir nafni og myndbandið, teiknað af Rán Flygenring, klæðir lagið í hinn notalegasta búning. Lag og texti er eftir Sigurð Guðmundsson sjálfan. „Þetta á að vera klassískt og notalegt jólalag. Samt er undirliggjandi rammpólítísk ádeila í laginu þar sem það fjallar um hinn bláa jólakött, sem fólk má túlka eins og það það vill. En það er kannski meira grín en alvara,“ útskýrir Sigurður.

Sigurður og Sigríður
Sigurður og Sigríður

Mynd: Brynjar Snær

Sigríður segir að lagið hafi fengið sitt eigið líf í stúdíóinu og orðið stærra en áætlað var: „Við fórum bara í stúdíóið og ætluðum að gera eitthvað lítið og sætt með bara píanó og söng. Áður en við vissum af var útsetningin orðin miklu stærri og við farin að taka upp strengi og með því.“ Sigríður segir jafnframt að í kjölfarið hafi þau viljað að gera laginu enn hærra undir höfði með viðeigandi myndbandi. „Við höfðum því samband við Rán sem leist strax vel á lagið og hugmyndir okkar. Hún skilaði síðan af sér þessu yndislega myndbandi sem okkur finnst passa fullkomnlega við lagið.“

Miðasala á Hátíðartónleikana í Hörpu fer fram hér:

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=VoHbet33EiE?rel=0&hd=1&wmode=transparent]
Sigurður Guðmundsson & Sigríður Thorlacius – Notalegt

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7