fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Kryddlegin hjörtu fyrir alla

Kynning
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. janúar 2016 09:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Kryddlegin hjörtu er staður þar sem allir gestir finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um ræðir vegan, grænmetisætur eða þá sem borða allt, en sem dæmi má nefna að staðurinn býður meðal annars upp á mexíkanskan matseðil. Staðurinn er einna vinsælastur fyrir súpu og salatbarinn en á boðstólum eru kraftmiklar súpur og lífræn salöt sem starfsfólkið býr til frá grunni. Dagbjört Norðfjörð, annar eigenda staðarins, segir þau nota ekkert hveiti, ger eða sykur við matargerðina og því sé allt sem í boði er mjög heilsusamlegt. „Til að þykkja súpurnar til dæmis notum við kasjúhnetur og glúteinfrítt maísmjöl,“ segir Dagbjört. Í framhaldinu segir hún: „Brúnan sykur notum við aðeins í kaffi og karmellu ásamt frönsku súkkulaðikökuna og döðlukökuna sem við bjóðum upp á.“

Mjög heilsusamlegur matseðill: allt unnið frá grunni

Dagbjört segir: „Við hugsum mikið um heilsuna hér og staðurinn býður upp á mjög heilsusamlegan mat. Við erum með mat fyrir alla. Hér getur hópur af fólki komið og allir geta borðað saman. Við erum með mexíkanskan matseðil líka og því er úr mörgu að velja.“

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Allt sem staðurinn býður upp á er unnið frá grunni og einblína eigendur staðarins á að nota alíslenskt hráefni og styðja íslenska framleiðslu eins og mögulegt er. „Sem dæmi má nefna vorum við að gera samstarfssamning við Kaffitár og bjóðum því upp á kaffi frá þeim,“ segir Dagbjört.

„Það er gaman að segja frá því að við búum líka til okkar eigin pestó fyrir salatbarinn sem inniheldur engar hnetur. Þau hráefni sem við notum í pestóið eru meðal annars graskers- og sólblómafræ ásamt basilolíu sem við blöndum saman við íslenskt bankabygg. Þetta hefur verið gríðarlega vinsælt hjá okkur. Auk þess handgerum við brauðið okkar frá grunni og inniheldur það meðal annars gróft og fínt speltmjöl og íslenskt bankabygg frá fyrirtækinu Móður jörð.“

Réttir dagsins og villisveppasúpan vinsælust

„Vinsælustu súpurnar í húsinu er villisveppasúpan og kjúklingasalsasúpan. Þær svíkja engan,“ segir Dagbjört. Réttir dagsins eru einnig gríðarlega vinsælir og segir hún að þeir sé í boði alla daga og eru nú á kynningaverði á 1.890 kr. en jafnframt er hægt að fá súpu og salat á sama verði alla virka daga í hádeginu til kl. 14.00. Réttir dagsins eru þrír: kjúklinga murgh rezzala, kjúklinga tikka masala og lamb rogan josh með indverskum grjónum og popadums.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Þekktust fyrir hvítlaukssmjörið

„Við erum þekktust fyrir hvítlaukssmjörið og hummusinn okkar,“ segir Dagbjört. „Óléttar konur elska þetta sérstaklega,“ segir hún. „Þetta er eitthvað sem við mæðgurnar erum búnar að þróa í 25 ár og náðum að fullkomna þegar við opnuðum Kryddlegin hjörtu.“

Kryddlegin hjörtu er staðsett á Hverfisgötu 33 og er í eigu Írisar Heru Norðfjörð og dóttur hennar, Dagbjartar Norðfjörð. Staðurinn mun fagna átta ára afmæli á þessu ári. Opnunartíminn er sem hér segir:

Mán. til mið. kl. 11.30 til 21.00
Fim. kl. 11.30 til 22.00
Fös. og lau. kl. 11.30 til 23.00
Sun. kl. 11.30 til 22.00

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum