Ellefu ára stúlka brotnaði á báðum úlnliðum eftir að hafa skotist af hoppubelg í Stykkishólmi í kjölfar þess að fullorðinn maður hoppaði á belgnum af fullum krafti. Móðir stúlkunnar segir að fjölskyldan sé manninum ekki reið, ljóst sé að hann hafi ekki gert þetta viljandi heldur í hugsunarleysi. Hún vonast til þess að atvikið verði til þess að koma af stað umræðu um hertar öryggiskröfur á leiktækjum af þessu tagi og minnir fullorðið fólk á að beita sér ekki af fullu afli á slíkum tækjum ef börn séu þar fyrir. Margrét segir að slysið sé mikið högg fyrir dóttur sína sem sé afar virk íþróttastelpa.
Margrét Elísa Gunnarsdóttir er móðir hinnar ellefu ára gömlu Rakelar Viðjar Ragnarsdóttur. Margrét greindi frá atvikinu í færslu á Facebook sem hefur fengið töluverðan lestur og dreifingu. DV hafði í kjölfarið samband við hana og var hún fús til að ræða slysið nánar í von um að koma af stað umræðu um öryggi á leiktækjum af þessu tagi.
Margrét Elísa Gunnarsdóttir er móðir Rakelar. Mynd: Facebook
Margrét segir í samtali við DV að atvikið hafi átt sér stað síðastliðið sunnudagskvöld þegar Rakel var meðal hóps bæði barna og fullorðinna sem voru að hoppa á hoppubelgnum sem Margrét segir að sé nærri grunnskólanum í Stykkishólmi. Fjölskyldan var þar á ferðalagi en ætlunin var að fara hringinn í kringum landið en slysið varð til þess að hætta þurfti ferðalaginu.
Lögreglumál
Margrét og Ragnar maður hennar, faðir Rakelar, urðu sjálf ekki vitni að slysinu en hún segir liggja fyrir að Rakel hafi skotist út af belgnum eftir að fullorðinn maður sem var á svæðinu, ásamt sinni fjölskyldu, og er þeim ekki kunnugur hoppaði full harkalega á hoppubelgnum. Margrét segir að einnig hafi það líklega haft eitthvað að segja að belgurinn hafi ekki verið alveg fullur af lofti.
Í fallinu bar Rakel hendurnar fyrir sig. Hún lenti á grasi en fallið var það mikið kröftugt að hún hlaut svokölluð krumpubrot á báðum úlnliðum og þurfti að fá gips á báðar hendur.
Margrét segir ljóst og hefur það eftir dóttur sinni og fleiri börnum, sem urðu vitni að slysinu, að maðurinn hafi ekki tekið mið af aðstæðum og hoppað of harkalega á belgnum miðað við að þarna voru börn og sum hver minni en Rakel.
Margréti er ekki kunnugt um hvort belgurinn hafi verið settur upp á vegum Stykkishólmsbæjar. Hún segir að atvikið hafi verið tilkynnt til lögreglu sem hafi óskað eftir upplýsingum um nákvæma tímasetningu til að auðvelda skoðun á upptökum úr öryggismyndavélum á svæðinu.
Öryggi
Margrét vonast til þess að málið og rannsókn lögreglu verði til þess að öryggiskröfur við hoppubelginn og sambærileg leiktæki annars staðar á landinu verði hertar. Hún segist hafa fengið þær upplýsingar í Stykkishólmi að það sé nokkuð algengt að börn slasist á þessum hoppubelg en þó yfirleitt ekki jafn alvarlega og Rakel. Aðspurð segir Margrét að ekki hafi enn sem komið er verið haft samband við Stykkishólmsbæ vegna málsins.
Eins og áður segir þekkir fjölskyldan ekki til mannsins sem hoppaði svona harkalega á hoppubelgnum með þessum afleiðingum. Margrét og Ragnar voru ekki í námunda við hoppubelginn þetta kvöld en fengu símtal frá vini dóttur þeirra, sem var þar með henni og lýsti atvikinu og sagði að eitthvað mikið væri að þar sem Rakel væri afar illt. Ragnar kom örlítið á undan Margréti á staðinn og hún segir að þá hafi maðurinn verið að reyna að hugga Rakel. Margrét segir að maðurinn hafi tjáð Ragnari að það hefði verið töluverður hamagangur á hoppubelgnum en ekki viðurkennt að hafa sjálfur verið að hoppa á honum. Fóru foreldrarnir með Rakel í kjölfarið á starfsstöð Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi og þá kom í ljós hvers kyns var.
Ekki reið
Margrét segir manninn þar af leiðandi ekki hafa beðist afsökunar en hún sé samt ekki reið út í hann. Hún segir þó heldur hafa kosið að maðurinn hefði sagt frá því að hann hefði verið að hoppa á belgnum enda sé það hann sem sé fullorðinn. Rakel og önnur börn sem voru á svæðinu segi hann hafa sannarlega verið að hoppa á belgnum. Margrét ítrekar að maðurinn hafi reynt að hugga Rakel:
„Hann hefur greinilega áttað sig á að þetta var honum að kenna að miklum hluta en kannski ekki áttað sig á því hvað þetta var alvarlegt.“
Hún ítrekar einnig að bersýnilega hafi maðurinn gert þetta óvart og í hugsunarleysi.
Margrét segir ljóst að umræddur maður sé ekki eina fullorðna manneskjan sem hafi hoppað á svona belg. Þau hjónin hafi sjálf gert það með sínum börnum en þá passi þau sig að gera það ekki af fullum krafti. Eins og áður segir voru minni börn en Rakel á hoppubelgnum þetta kvöld og Margrét segist ekki hafa getað varist þeirri hugsun að hefði eitt af þeim orðið fyrir þessu hefði getað farið enn verr. Hún vill með því að segja frá slysinu koma af stað umræðu um þessi mál:
„Við verðum aðeins að passa okkur.“
Hún segir að kvöldið áður hafi hópur unglingsstráka verið að hoppa á belgnum og reyna að láta yngri börn skoppa. Eins og slysið á sunnudag þá sýni það að herða þurfi á öryggiskröfum þegar kemur að svona leiktækjum, t.d. með því að setja á hámarksaldur þeirra sem megi vera á þeim.
Hún ítrekar að lokum að þau fjölskyldan séu manninum ekkert reið heldur sé markmiðið með því að greina frá slysinu opinberlega að ýta undir umræðu um öryggi við leiktæki af þessu tagi.
Handboltinn
Ljóst er að það er duglegri og virkri íþróttastelpu eins og Rakel, sem æfir handbolta, erfitt að þurfa að vera með gips á báðum höndum og eins kom fram í upphafi batt slysið enda á hringferð fjölskyldunnar um landið. Margrét endar samtalið við DV á þessum orðum:
„Þetta er svekkjandi fyrir 11 ára öfluga stelpu. En við vorum að stefna á 10 daga hringferð sem verður núna ekki vegna þess hversu mikil áhrif það hefur að vera slösuð og í gipsi á báðum [höndum] og getur ekki tekið þátt í fjörinu sem var planað. En þökkum fyrir að ekki fór enn verr og þakklát frábæru starfsfólki á Heilbrigðisstofnuninni á Stykkishólmi. Nú er bara að vona að þetta grói rétt og vel hjá handboltastelpunni okkar og hafi ekki áfram á framtíð hennar í því, sem er það sem hún brennur mest fyrir.“