fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Gengur ekki í stjórnarsamstarfi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. janúar 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aldrei er það svo að við stjórnarþingmenn séum sammála um allt þegar kemur að ráðstöfun fjármuna ríkisins. Til að mynda eru ekki allir sammála um að ríkið greiði einstaka mönnum nokkrar milljónir á ári, áratugum saman fyrir að skrifa sömu bókina eða aðra eins og þá síðustu. Menn eru heldur ekki sammála um hvað eigi að greiða bændum í gegnum búvörusamning til að gera íslenskan landbúnað samkeppnishæfan við niðurgreiddan landbúnað í öðrum löndum.

Nú í vikunni lýsti formaður efnahags- og viðskiptanefndar sig andvígan aðild Íslands að Innviðafjárfestingabanka Asíu. Stofnun bankans er hluti af þróunarsamvinnu flestra vestrænna ríkja til að styrkja fjárfestingar í Asíu. Með þátttöku okkar er opnað fyrir að íslensk fyrirtæki geti haslað sér völl á þessum svæðum þar sem efnahagslegur vöxtur er hvað mestur í heiminum. Í því geta falist miklir hagsmunir fyrir Ísland.

Þær smávægilegu fjárveitingar sem hafa farið til greiðslu á skuldbindingum Íslands hefur Alþingi samþykkt með fjáraukalögum 2015 og fjárlögum fyrir 2016. Ólíklegt er að við þurfum að greiða nema um fimmtung af 2,3 milljarða króna skuldbindingu og það á fimm árum. Samþykktir bankans lágu fyrir þegar greidd voru atkvæði um fjárlög og fjáraukalögin. Engin ástæða er því til þess að ætla að Alþingi greiði gegn hinni óþörfu þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um heimild til að staðfesta samþykktir bankans.

Rétt er hjá formanni efnahags- og viðskiptanefndar að hver og einn þingmaður hefur frelsi til að greiða atkvæði í þessu máli eins og honum sýnist. Það á við öll mál enda gerir stjórnarskráin ráð fyrir því. Einnig er rétt hjá formanninum að ekkert er í stjórnarsáttmálanum um aðild okkar að innviðafjárfestingabanka hinum megin á jörðinni. En formaður efnahags- og viðskiptanefndar verður að gera upp við sig hvort hann styðji ríkisstjórnina. Að greiða á móti einstökum liðum fjárlagafrumvarps eða að sitja hjá gengur ekki í stjórnarsamstarfi. Svo væri meiri bragur á því að ræða við fjármálaráðherra um afstöðu sína í stað þess að fara fram með þessum hætti á Fésbókarsíðu sinni, eins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar gerði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum