5. ágúst, 2012, skaut Bandaríkjamaðurinn Wade Michael Page sex manns til bana og særði fjóra að auki í sikha-hofi í Oak Creek í Wisconsin. Ástæðu morðanna mátti sennilega rekja til þess að Page trúði á yfirburði hvíta kynþáttarins. Sjálfur svipti Page sig lífi með skoti í höfuðið eftir að hafa fengið skot í kviðinn úr byssu lögreglu sem mætti á svæðið.
88 ára konu, Alice Covington, var drekkt í baðkari á heimili sínu, í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, þann 12. maí 1998. Morðinginn var Carlette nokkur Parker sem vann við heimaþjónustu. Fyrir morðið hafði Parker tekið út fé af reikningi Covington. Parker var enginn nýgræðingur í glæpum og árið 1985 játaði hún sig seka um að hafa með svikum og prettum haft 44.000 dali af aldraðri konu, Catherine Stevenson. Parker fékk dauðadóm árið 1999.