fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Amityville-morðin

Myrt sofandi í rúmum sínum – Aðeins einn eftir til frásagnar

Kolbeinn Þorsteinsson
Sunnudaginn 21. ágúst 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðvikudaginn 13. nóvember, 1974, klukkan 18.30, kom Ronald DeFeo yngri hlaupandi inn á bar í Amityville á Long ­Island í Bandaríkjunum. Honum var ­mikið niðri fyrir og sagði óðamála: „Þið verðið að hjálpa mér. Ég held að það sé búið að skjóta pabba og mömmu.“

DeFeo yngri og nokkrir gestir fóru á heimili DeFeo og mikið rétt; faðir hans og móðir voru látin, og hringt var á lögregluna. Lögreglan fór í gegnum allt húsið og í ljós kom að sex úr fjölskyldu DeFeo yngri lágu andvana í rúmum sínum. Um var að ræða Ronald DeFeo eldri, eiginkonu hans Louise, börn þeirra hjóna; Dawn, 18 ára, ­Allison, 13 ára, Mark, 12 ára, og John, 7 ára. Ætla mátti að DeFeo yngri, 23 ára, væri eini eftirlifandi fjölskyldu­meðlimurinn.

Síðasti svefnstaður fjölskyldu Ronalds DeFeo yngri.
Húsið Síðasti svefnstaður fjölskyldu Ronalds DeFeo yngri.

Ótrúleg frásögn

DeFeo yngri bauð lögreglunni upp á ótrúlega frásögn sem hófst tveimur vikum fyrr. DeFeo, eða „Butch“ eins og hann ítrekað krafðist að vera kallaður, sagði að þá hefði hann verið á leið í bankann með fjármuni úr fyrir­tæki fjölskyldunnar. Það gekk ekki sem skyldi því þekktur mafíósi, Louis Falini, veittist að Butch og stal öllu fénu.

Butch sagði föður sínum farir sínar ekki sléttar, en DeFeo eldri brást hinn versti við, sakaði son sinn um lygar og að hafa stolið peningunum sjálfur.

Butch sagði lögreglunni enn fremur að faðir hans hefði verið á kafi í viðskiptum við mafíuna.

„Þið verðið að hjálpa mér. Ég held að það sé búið að skjóta pabba og mömmu.“

Taumlaus drykkja

Daginn sem morðin voru ­framin hafði Butch setið að sumbli. Snemma dags kíktu vinir hans við og héldu honum selskap en þegar leið á daginn fór Butch á fyrrnefndan bar og hélt drykkjunni áfram.

Þegar hann yfirgaf barinn var eftir því tekið, segir sagan, hve ­mikið hann klifaði á því að hann hefði gleymt lyklunum heima og þyrfti því sennilega að brjótast inn. Um klukkustund síðar kom Butch til baka með ótíðindin af foreldrum sínum.

Samhliða því að hlýða á frásögn Butch leitaði lögreglan upplýsinga um hann frá vinum hans.

Áhugi á skotvopnum

Lögreglan komst að því að Butch var af mörgum talinn undarlegt fyrir­bæri og áttu skotvopn huga hans allan. Ákveðið var að líta aðeins nánar á Butch, hann var hnepptur í varðhald og leitað í herbergi hans.

Þar fannst kassi utan af Marlin .35 kalibera riffli og síðar kom í ljós að fjölskyldan hafði öll verið skotin með nákvæmlega þannig riffli.

Þegar þarna var komið sögu lét Butch skáldfákinn geisa og upp úr honum ullu hinar undarlegustu frásagnir af því hvernig dauða fjölskyldunnar bar að höndum.

Lífstíðardómur

Þegar réttarhöldin hófust bar ­Ronald „Butch“ Defeo yngri fyrir sig geðveiki. Dómari og kviðdómur létu ekki blekkjast og hljóðaði dómur yfir honum upp á sexfaldan 25 ára dóm til lífstíðar.

Þessa sex 25 ára dóma átti Defeo að afplána samtímis ekki hvern á fætur öðrum, en „lífstíðar“-ákvæðið heldur honum á bak við lás og slá þar til hann fær reynslulausn, sem honum hefur ítrekað verið neitað um.

Morðin urðu síðar uppspretta kvikmyndanna The Amityville ­Horror og Amityville II: The Possession auk ótal fleiri kvikmynda sem hafa orðið Amityville í heiti sínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Vikan á Instagram – „Maður fer all inn á brókinni fyrir vinkonu sína“

Vikan á Instagram – „Maður fer all inn á brókinni fyrir vinkonu sína“
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Gullúr ríkasta farþegans um borð í Titanic seldist fyrir 210 milljónir

Gullúr ríkasta farþegans um borð í Titanic seldist fyrir 210 milljónir