fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Fréttir

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 16. september 2025 07:00

James Wray og William McKinney voru myrtir árið 1972

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmum 50 árum eftir einn afdrifaríkasta óaldarinnar sem ríkti á Norður-Írlandi á síðustu öld, Bloody Sunday í Derry árið 1972,  hefur fyrrverandi breskur fallhlífarhermaður verið dreginn fyrir dóm ákærður fyrir morð og tilraun til morðs á óvopnuðum borgurum. Hermaðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, er sagður  hafa skotið James Wray, 22 ára, og William McKinney, 26 ára,  til bana þann 30. janúar 1972, auk þess að hafa reynt að myrða fimm aðra menn þegar friðsamleg mannréttindaganga kaþólikka í Derry endaði með alræmdu blóðbaði.

Réttarhöldin, sem fara fram í Belfast, hafa vakið mikla athygli á Bretlandseyjum. Á opnunardegi þeirra sat hermaðurinn í vitnastúkunni, hulinn svörtum skjá til að halda nafnleynd sinni. Saksóknari málsins gekk hart fram og sagði hermanninn og aðra kollega hans hafa „skotið á fólk sem var að flýja, án ástæðu og í trássi við skyldur sínar“.

Tugir ættingja fórnarlambanna tóku þátt í mótmælum fyrir utan dómshúsið áður en réttarhöldin hófust en einnig voru hermann mættir til að sýna kollega sínum stuðnings.

Þrettán mótmælendur létu lífið á Bloody Sunday og atburðurinn varð einn af táknmyndum 30 ára átaka á Norður-Írlandi. Árið 1998 var Saville-rannsókninni svokölluðu ýtt úr vör, þeirri dýrustu í sögu Bretlands. Rannsóknin, sem tók 12 ár og kostaði 200 milljónir punda, leiddi í ljós að fórnarlömbin hefðu ekkert til saka unnið heldur verið myrt með köldu blóði.

Skýrslan kom út árið 2010 en níu árum síðar, árið 2019, var áðurnefndur hermaður kærður á grundvelli hennar. Um er að ræða eina fyrrverandi hermanninn sem hefur verið dreginn fyrir dóm vegna málsins. Ekki er vitað um nákvæman aldur mannsins en fram hefur komið að hann sé heilsuveill. Hann neitar alfarið sök í málinu.

„Þetta er stór dagur í baráttu okkar fyrir réttlæti. Það hefur tekið 53 ár að komast hingað, en við vitum að við stöndum á réttu hlið sögunnar,“ er haft eftir John McKinney, bróðir eins af meintu fórnarlömbum hermannsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Íslenskur sérfræðingur hefur efasemdir um sönnunargögn í einu alræmdasta fjöldamorðingjamáli Bretlands

Íslenskur sérfræðingur hefur efasemdir um sönnunargögn í einu alræmdasta fjöldamorðingjamáli Bretlands
Fréttir
Í gær

Níðingurinn sem er grunaður í hvarfi Madeleine að losna úr fangelsi – Neitar að vera yfirheyrður vegna málsins

Níðingurinn sem er grunaður í hvarfi Madeleine að losna úr fangelsi – Neitar að vera yfirheyrður vegna málsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrjár níræðar nunnur lögðu á flótta frá hjúkrunarheimili – Það reyndist auðvelt að finna þær

Þrjár níræðar nunnur lögðu á flótta frá hjúkrunarheimili – Það reyndist auðvelt að finna þær
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við höfum lagt áherslu á að Grindavík sé hluti af framtíðinni en ekki fortíðinni“

„Við höfum lagt áherslu á að Grindavík sé hluti af framtíðinni en ekki fortíðinni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokkurinn vill leita að olíu og gasi – Beri það árangur sé hægt að útrýma verðtryggingunni

Miðflokkurinn vill leita að olíu og gasi – Beri það árangur sé hægt að útrýma verðtryggingunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvörtunum vegna Reykjavíkurflugvallar hefur fjölgað hratt – Umsókn um nýtt starfsleyfi verið meira en ár í vinnslu

Kvörtunum vegna Reykjavíkurflugvallar hefur fjölgað hratt – Umsókn um nýtt starfsleyfi verið meira en ár í vinnslu