fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Segir Ólaf Ragnar hata ESB og gefur upp mögulega ástæðu fyrir því

Ritstjórn DV
Föstudaginn 24. apríl 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, brást ókvæða við fréttum þess efnis að sjávarútvegsstjóri ESB hefur sagt sambandið opið fyrir því að veita Íslandi undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins.

Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri ESB, lét þessi ummæli falla í viðtali við Financial Times en mbl.is greindi frá málinu. Mbl.is greinir einnig frá viðbrögðum Ólafs Ragnars við þessum fréttum í færslum hans á samfélagsmiðlinum X. Spyr Ólafur Ragnar hvernig Ísland geti fengið undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB þegar háttsettur erindregi segi að enginn skilji þá stefnu í raun og veru. Einnig hafi helstu stórveldi ESB kvartað undan því að sjávarútvegsstefna sambandsins sé orðin svo flókin að hún skapi erfiðleika í daglegum rekstri.

Ólafur Ragnar skrifar: „Þá segir framkvæmdastjórinn Costas Kadis við Financial Times að ESB sé að skapa NÝJA sjávarútvegsstefnu!! Mun Ísland semja um óþekkta nýja stefnu eða þá sem fyrir er, sem enginn skilur og er óstarfhæf að mati Frakklands, Þýskalands og Financial Times?!“

Umhugsunarvert hatur

Gauti B. Eggertsson, hagfræðiprófessor við Brown-háskóla í Bandaríkjunum, segir að frétt mbl.is um skrif Ólafs Ragnars á X sé einhver sú furðulegasta frétt sem hann hafi lesið:

„Þetta hlýtur að vera einhver furðulegasta frétt sem ég hef lesið. Ólafur Ragnar er alveg brjálaður, hreinlega gáttaður, yfir því að Financial Times segir ESB tilbúið að veita Íslandi undanþágu er varðar stjórn eigin fiskimiða vegna þess að… enginn sem ÓRG þekkir hafi sagt þetta við hann. Sumsé, ESB gleymdi að láta hann vita.“

Gauti bendir á að sjávarútvegsstjóri ESB hljóti að teljast betri heimildarmaður um hvað raunhæft sé í samningum sambandsins og Íslands en forsetinn fyrrverandi. Gauti segir Ólaf Ragnar hata ESB og segist vera með kenningu um ástæðuna fyrir því hatri:

„Annars er umhugsunarefni hatrið hjá ÓRG gagnvart ESB. Honum leið alltaf betur í Kína, Rússlandi og Miðausturlöndum. Ég er með kenningu: Í Evrópu vissu allir að forseti skiptir engu máli í stjórnskipulagi Íslands og voru því ekki að eyða miklu púðri í opinberar heimsóknir forseta sem hafði engin völd. Fólk á fjarlægari slóðum var ekki alveg með þetta á hreinu.“

Egill Helgason fjölmiðlamaður blandar sé í umræður undir FB-færslu Gauta og segir:

„Mér finnst eiginlega frekar óviðeigandi að fyrrverandi forseti skuli ganga svona langt í pólitískri baráttu. Og svo er þetta líka furðulegur málflutningur. En er ekki bara ÓRG að setja sig í stellingar að verða leiðtogi baráttunnar gegn ESB. Þetta verður svo einhvers konar met – í framlínu stjórnmálanna í hartnær sjö áratugi? Maður spyr sig þá hvort ekki eigi að láta yngra fólk um þetta?“

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, svarar Agli og segir að öllum sé frjálst að ræða þau mál sem þeir telja mikilvæg. Ólafur Ragnar hafi verið óhefðbundinn forseti og verði einnig óhefðbundinn fyrrverandi forseti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar

Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.