fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Fréttir

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 4. mars 2026 16:30

Bréfið var sent á Baldvin Þorsteinsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Namibískir sjómenn sem störfuðu fyrir útgerðarfélagsins Samherja og undirfélög þess eru enn þá að bíða eftir bótum sem þeir fengu dæmdar. Skyndilegar uppsagnir þeirra höfðu mikil áhrif á samfélagið og kipptu stoðunum undan sjómönnunum.

Blaðið The Namibian Sun greinir frá þessu.

Á mánudag, 2. mars, sendi lögmaður 252 sjómanna og annarra starfsmanna sem störfuðu fyrir Samherja og tengd félög í Namibíu, bréf til Baldvins Þorsteinssonar forstjóra Samherja. Var krafist fullra bóta þegar Samherji seldi togarann Heinaste og yfirgaf svæðið.

Starfsmönnunum var sagt upp árin 2019 og 2020 eftir að fjölmiðlar birtu umfjallanir um meintar mútugreiðslur og spillingarmál forsvarsmanna Samherja og namibískra yfirvalda.

Hver starfsmaður fékk greiðslu upp á því sem jafngildir um 77 þúsund krónum þrátt fyrir að hafa starfað fyrir félögin í áraraðir. Að mati lögmanns var ekkert tekið tillit til uppsagnarfrests, starfstíma eða annars sem bera að gera samkvæmt namibískum lögum. Var bótagreiðslan sögð verða smánarleg.

Sjá einnig:

Namibískir sjómenn krefja Samherja um fullar efndir samninga – Hafa þurft að koma börnum til ættingja vegna fátæktar

Eins og greint hefur verið frá áður hefur líf sjómannanna verið erfitt síðan þeim var sagt upp. Margir lifa á bótum frá ríkinu, hafa sokkið í skuldir eða fíkn og þurft að senda börnin til ættingja.

Árið 2023 dæmdi félagsdómur í Namibíu Samherja til að greiða 23 sjómönnum á Heinaste um eina milljón króna í bætur. Esja, félag í eigu Samherja, bauðst til að borga bæturnar að hluta en því var hafnað og krafist fullra efnda.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fordómarnir flæða upp á yfirborðið hjá bandarískum þingmönnum

Fordómarnir flæða upp á yfirborðið hjá bandarískum þingmönnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Braut lög þegar hann henti leigjandanum fyrirvaralaust út

Braut lög þegar hann henti leigjandanum fyrirvaralaust út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fólk gapandi eftir að upplýst var um fund Miðflokks með öfgasamtökum – „Trúðarnir heimsóttu Trumpistan“

Fólk gapandi eftir að upplýst var um fund Miðflokks með öfgasamtökum – „Trúðarnir heimsóttu Trumpistan“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skíðagöngufólki bjargað niður af Hofsjökli

Skíðagöngufólki bjargað niður af Hofsjökli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hrönn vísar harðri gagnrýni á bug – Ósátt við að starfsemi kvikmyndahátíðar sé gerð „tortryggileg í útvarpi allra landsmanna“

Hrönn vísar harðri gagnrýni á bug – Ósátt við að starfsemi kvikmyndahátíðar sé gerð „tortryggileg í útvarpi allra landsmanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Átta ára fangelsi fyrir viðurstyggileg brot gegn eiginkonu og gestkomandi barni – Viðurkenndi að brotin væru ófyrirgefanleg

Átta ára fangelsi fyrir viðurstyggileg brot gegn eiginkonu og gestkomandi barni – Viðurkenndi að brotin væru ófyrirgefanleg
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Faðir lét barnaperra hafa það óþvegið – „Þú átt ekki að vera á leikvellinum“

Faðir lét barnaperra hafa það óþvegið – „Þú átt ekki að vera á leikvellinum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hafdís Björg opnar sig frekar um heimilisofbeldið – „Fólk getur ekki sett sig í þessi spor ef það hefur ekki verið þarna“

Hafdís Björg opnar sig frekar um heimilisofbeldið – „Fólk getur ekki sett sig í þessi spor ef það hefur ekki verið þarna“