fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sauð upp úr í Torfufelli – Ákærður fyrir stórhættulega árás með hafnaboltakylfu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 2. mars 2026 15:00

Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður um þrítugt hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem var framin laugardaginn 9. mars árið 2024, í íbúð í Torfufelli í Breiðholtinu.

Ákærði er sakaður um að hafa slegið annan mann endurtekið með hafnaboltakylfu víðsvegar um líkamann, meðal annars í höfuð. Hlaut brotaþoli mar og yfirborðsáverka á höfði, hálsi, búk og útlimum.

Fyrir utan kröfu héraðssaksóknara um að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar er krafist upptöku á rauðri hafnaboltakylfu sem notuð var til að fremja brotið.

Brotaþoli krefst síðan 1,2 milljóna króna í skaða- og miskabætur.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þriðjudaginn 3. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum