
Deilur um peningaskuld voru kveikjan að hópárás í Túnunum í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt. Þetta herma heimildir DV.
Sjö menn voru handteknir fyrir meiriháttar líkamsárás. Voru þeir allir vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Árásarþolarnir voru tveir.
Málið er farið frá lögreglustöð 1 yfir til miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins. Eiríkur Valberg, fullrúi á deildinni, segir málið á mjög viðkvæmu stigi og ekki sé hægt að veita neinar upplýsingar um það. Þó liggur fyrir að sjö meintir árásarmenn eru í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir í dag.
Árásarmennirnir eru af erlendum uppruna, frá Palestínu, samkvæmt heimildum DV. Brotaþolarnir tveir eru Íslendingar og liggur annar þeirra á sjúkrahúsi. Samkvæmt sömu heimildum þekktust brotaþolarnir og árásarmennirnir og höfðu mælt sér mót. Árásin átti sér stað utandyra í Túnunum.