fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Svala segist standa með Hafdísi og sé sjálf þolandi sama manns

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 10. mars 2026 19:01

Hafdís Björg og Svala. Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir hefur lýst yfir stuðningi við Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur einkaþjálfara sem sagðist nýlega hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu fyrrverandi kærasta síns, Kristjáni Einari Sigubjörnssyni, eða Kleina eins og hann er kallaður. Svala segist hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu sama manns.

„Stend með þér elsku gull og öllum þolendum ofbeldis. Ég er sjálf þolandi ofbeldis af sama manni! Saman erum við survivors og hetjur og sterkar,“ segir Svala í færslu á Instagram.

Sjá einnig:

Nauðgunarmálið á Akureyri:Mennirnir látnir lausir

Deilir hún færslu Hafdísar Bjargar þar sem stóð: „Eina ástæðan fyrir því að ég stíg fram núna er sú að ég hef ekki samvisku til að þegja lengur og horfa upp á þann viðbjóð sem hann skapar.“

Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum er Kristján Einar einn af þremur mönnum sem handteknir voru á Akureyri og eru grunaðir um aðild að hópnauðgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Berglind fengið nóg: Sýnir skuldastöðu sína eftir að hafa borgað af lánunum árum saman

Berglind fengið nóg: Sýnir skuldastöðu sína eftir að hafa borgað af lánunum árum saman
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg