fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 9. febrúar 2026 09:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæknifyrirtækið OK hefur hlotið viðurkenninguna Årets HPE Innovations Partner 2025 á HPE Partner Awards, sem haldin voru í Kaupmannahöfn um helgina.

Verðlaunin eru veitt þeim samstarfsaðila sem skarar fram úr í nýsköpun og árangri í lausnum byggðum á þekkingu frá HPE. Viðurkenningin endurspeglar öflugt samstarf, lausnamiðaða hugsun og faglega nálgun í verkefnum þar sem áhersla er lögð á að tæknin styðji raunverulegar þarfir viðskiptavina.

Pétur Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri kjarnalausna hjá OK, segir viðurkenninguna vera staðfestingu á öflugu teymi og góðu samstarfi við viðskiptavini: „Við leggjum mikla áherslu á að nýta HPE-lausnir á raunhæfan og markvissan hátt svo að þær skili raunverulegum rekstrarlegum ávinningi fyrir viðskiptavini. Það er ánægjulegt að sjá þá vinnu fá alþjóðlega viðurkenningu.“

Pétur Ingi Björnsson og Gunnar Þór Friðleifsson, vörustjóri hjá OK, tóku við verðlaununum fyrir hönd fyrirtækisins á viðburðinum.

Verðlaunin eru mikilvæg viðurkenning fyrir þá vinnu sem OK hefur unnið í nánu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila, þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, skýra ábyrgð og traustar lausnir í framkvæmd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”