

Maðurinn, Jens Hjartarson, var ákærður fyrir að veitast með ofbeldi að konu fyrir utan N1 við Háholt í Mosfellsbæ þann 18. júlí 2023. Þá var hann ákærður fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum og fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti.
Líkamsárásin var fólskuleg en samkvæmt ákæru skallaði hann konuna í höfuðið og sló hana ítrekað með krepptum hnefa í andlit og bringu, með þeim afleiðingum að hún hlaut heilahristing, skurð á hægra augnloki, mar á kinnbeini og yfirborðsáverka á höfði og yfir brjóstbeini.
Í dómnum kemur fram að atvikið hafi átt sér stað rétt fyrir miðnætti þann 18. júlí. Meðal gagna málsins voru ljósmyndir og myndskeið úr öryggismyndavél frá bílaplani bensínstöðvarinnar.
„Á myndskeiðinu sést áðurgreind bifreið koma að bensínstöðinni og nema þar staðar. Þar má sjá ákærða sitja í farþegasæti bifreiðarinnar, en brotaþola í ökumannssæti. Eftir skamma stund sést ákærði yfirgefa bifreiðina, ganga í átt að bensíndælum á bílaplaninu og kasta af sér þvagi. Að því loknu sést ákærði snúa aftur að bifreiðinni, þar sem hann fer aftur inn í farþegasætið og krýpur þar á hnjánum og snýr í átt að brotaþola. Má þá sjá ákærða veitast að brotaþola með því að kasta líkama sínum fram að brotaþola með höfuðið á undan. Að svo búnu sést ákærði yfirgefa bifreiðina á ný, en í framhaldi af því ekur brotaþoli í burt og úr mynd,” segir í dómnum.
Í skýrslutöku á bráðamóttöku Landspítalans greindi konan frá því að hún og maðurinn væru í sambandi og hefðu rifist yfir daginn vegna sambands síns.
„Hefði brotaþoli ætlað að aka ákærða í bæinn, en hann hefði viljað stoppa á Áslák og kaupa sér bjór. Ákærði hefði skellt hurðum á bifreið hennar og hún atyrt hann fyrir vikið. Í kjölfarið hafi ákærði snöggreiðst og hafið að svívirða hana. Þegar þau hafi komið að N1 í Háholti hafi ákærði hótað henni líkamsmeiðingum. Ákærði hafi beðið brotaþola um að rétta sér bjór, sem hún hafi neitað að gera. Í kjölfarið á því hafi ákærði skallað brotaþola í nefið og kýlt hana með krepptum hnefa í andlitið.”
Maðurinn játaði sök en í niðurstöðu dómsins kemur fram að maðurinn hefði snúið við blaðinu í lífi sínu og að sögn verið án vímuefna um langt skeið. Þá játaði hann brot sín skýlaust og sýndi iðrun yfir að hafa framið þau.
Áréttaði hann að hafa verið viti sínu fjær vegna fíkniefnaneyslu í umrætt sinn. Loks hefði hann viðurkennt bótaskyldu og harmað að hafa valdið konunni skaða.
Í dómnum kemur fram að Jens eigi langan sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2002. Hlaut hann meðal annars átta ára fangelsisdóm vorið 2013 fyrir að nauðga stúlku og beita þrjár til viðbótar ofbeldi.
Auk þess að sæta fangelsi í fimm mánuði var honum gert að greiða konunni 400 þúsund krónur í miskabætur, 800 þúsund króna laun skipaðs verjanda síns og 250 þúsund krónur í annan sakarkostnað.