fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Erlent fiskiskip óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna slasaðs sjómanns

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 20:22

Mynd/Landhelgisgæsla Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skipstjóri erlends fiskiskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gær og óskaði eftir aðstoð vegna slyss sem varð um borð í skipinu. Vír hafði slitnað og hafnað í brjóstkassa eins úr áhöfninni. Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.

Þegar útkallið barst var skipið statt um 450 sjómílur vestur af Reykjavík, töluvert fyrir utan íslenska efnahagslögsögu. Varðstjórar í stjórnstöð höfðu samband við kollega sína í björgunarmiðstöðinni í Nuuk en þá kom í ljós að engin björgunarþyrla var til taks á austurströnd Grænlands.

Skipstjórinn var því beðinn um að sigla í átt að Íslandi og inn í íslenska efnahagslögsögu. Þegar þangað var komið var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út ásamt áhöfninni á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, eins og alltaf er gert þegar útkall er þetta langt á hafi úti.

Í tilkynningu segir enn fremur:

„Á fimmta tímanum í dag kom áhöfn flugvélarinnar að skipinu og fór yfir móttöku þyrlu með skipstjóra og gaf leiðbeiningar fyrir flutning þess slasaða um borð í þyrluna. Laust fyrir klukkan fimm kom áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, á staðinn og hóf hífingar um 170 sjómílur vestur af Garðskaga sem gengu vel.

Að því búnu var flogið með þann slasaða til Reykjavíkur en þyrlusveitin lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum. Þar beið sjúkrabíll og flutti þann slasaða á Landspítalann.“

 

1000031107
play-sharp-fill

1000031107

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Hide picture