

Hópslysaáætlun Almannavarna hefur verið virkjuð eftir að smárúta og fólksbíll lentu saman á gagnamótum Biskupstungnabrautar og Laugarvatnsvegar á Suðurlandi í dag.
Tilkynning um slysið barst um klukkan 14:00 og þyrla var send á vettvang.
Tveir eru slasaðir og verða fluttir til Reykjavíkur til aðhlynningar. Alls lentu tíu manns í árekstrinum og átta verða fluttir til skoðunar á Selfoss. Til skoðunar er að flytja þá slösuðu flugleiðis.