fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Siggi Stormur segir breytingar fram undan – „Þetta er dagurinn sem öllu breytti“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, segir að vegfarendur þurfi að vera búnir undir erfiða færð á suðvesturhorni landsins í dag. Veðurstofan spáir snjókomu í dag og gæti færð spillst til dæmis á Reykjanesbraut og á Hellisheiði.

Sigurður fór yfir veðrið í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun og hann var meðal annars spurður út það hvort spáin væri að fara rætast og hvort enn væri von á snjókomu.

„Já, það má eiginlega segja það en vindurinn er reyndar aðeins minni en leit út fyrir í gær,“ sagði Sigurður og bætti við að úrkoman byrji sem „fjúk“ og þegar líður á daginn, um tvö leytið, verði snjókoman meira áberandi með strekkingsvindi.

„Það eru engin læti með vind í þessu en það getur alveg fokið til,“ sagði hann og bætti við að þó að snjókoman þróist yfir í rigningu þegar líður frekar á daginn gæti komið tímabil sem verður erfitt fyrir bíla.

Sigurður segir að nú séu breytingar fram undan í veðrinu eftir rólyndis veður síðustu vikurnar.

„Við erum eiginlega lent í því að þetta er dagurinn sem öllu breytti, nú erum við að fá eðlilegri stöðu að segja má. Við erum með lægðagang fram undan sem er ávísun á mjög misskipt veður. Meginlandið er að fá hlýindin sem hafa verið suður í höfum og hafa ekki náð inn á meginlandið sem er búið að vera í miklum kuldum,“ sagði hann í Bítinu.

Hann segir að veðurspár, bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum, séu nokkuð samstíga varðandi daginn í dag og gera megi ráð fyrir úrkomu á vesturhelmingi landsins, fyrst í formi snjókomu í höfuðborginni, Reykjanesi og á láglendi á Suðurlandi. Það mun svo hlýna þegar líður á daginn og þá verður úrkoman í formi slyddu eða rigningar.

Lögreglan á Suðurnesjum hvatti vegfarendur á vanbúnum bílum til að halda ekki af stað vegna yfirvofandi snjókomu. Sigurður segist reyndar hafa minni áhyggjur af Reykjanesbrautinni en Hellisheiði þar sem vindurinn verður hægari en við áttum von á.

„Þá verður skyggnið ekki eins slæmt á meðan snjókoman gengur yfir. Hellisheiðin nær ekki að fara upp fyrir frostmark og þar verðum við í frosti og snjókomu. Það er rétt að taka það fram að það er svolítið magn í þessu, þessir staðir sem þú nefndir eru í skotlínunni.“

Heimir Karlsson, þáttastjórnandi Bítisins, spurði Sigurð svo að lokum hvort eitthvað sæist lengra fram í tímann – næsti mánuður jafnvel. Sigurður sagði að langtímaspár, eða svokallaðar veðurlagsspár, bentu til þess að við værum að detta inn í rysjótta tíð á suður- og suðvesturhluta landsins en veðrið norðan- og austanlands yrði að líkindum skaplegra.

Hér er hægt að fylgjast með færð á vegum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra