fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fangavörður grunaður um brot í starfi – Komst upp eftir símhlerun

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 07:33

Myndin er úr safni og tengist frétt ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fangavörður hefur verið sendur í leyfi frá störfum vegna gruns um brot í opinberu starfi. Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag en ekki kemur fram hvar umræddur fangavörður starfar.

Karl Ingi Vilbergsson héraðssaksóknari staðfestir að málið sé til rannsóknar.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vaknaði grunur um brot í tengslum við símhleranir á farsíma lögmannsins Gunnars Gíslasonar. Hann var handtekinn í nóvember í tengslum við rannsókn lögreglu á hinu svokallaða Raufarhafnarmáli, en það varðar stórfellda ræktun á fíkniefnum.

Í frétt blaðsins kemur fram að fangavörðurinn sé grunaður um að hafa veitt upplýsingar um gæsluvarðhaldsfanga, en það telst brot í starfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”