fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Berklasmit greindist hjá tveimur starfsmönnum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. febrúar 2026 11:19

Heilsugæslan Miðbæ. Mynd: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Berklasmit hefur greinst hjá tveimur starfsmönnum einnar heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en um er að ræða heilusgæslustöðina í miðborg Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Í tilkynningunni segir að þetta hafi komið í ljós við skimun á starfsfólki stöðvarinnar. Fram kemur að þó bakterían hafi greinst í starfsfólkinu sé það ekki smitandi og sýni engin einkenni um berkla. Skjólstæðingar stöðvarinnar hafi því ekki verið útsettir fyrir smiti í samskiptum við starfsmennina.

Ákveðið hafi í öryggisskyni að skima framlínustarfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í kjölfar þess að berklasmit greindust hjá starfsfólki bráðamóttöku Landspítalans. Skimanir hafi fyrst farið fram á þeim starfsstöðvum þar sem talið var líklegt að starfsfólk hafi verið í samskiptum við einstaklinga sem gætu verið smitaðir af berklum.

Í ljós hafi komið að tveir starfsmenn Heilsugæslunnar Miðbæ sé með berklasmit. Smit þýði að bakterían greindist í blóði starfsmannanna. Þeir séu ekki með nein einkenni og séu ekki smitandi. Starfsmennirnir tveir fari nú í frekari rannsóknir og í kjölfarið í viðtal og mögulega meðferð hjá smitsjúkdómalækni.

Standa við bakið á starfsfólki

„Þetta er auðvitað áfall fyrir þessa starfsmenn, þeirra fjölskyldur og samstarfsfólk og okkar hugur er fyrst og fremst hjá þeim,“ er haft eftir Sigríði Dóru Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Við höfum rætt við bæði starfsmennina tvo og þeirra samstarfsfólk og upplýst að við stjórnendur stofnunarinnar munum standa þétt að baki þeim. Öryggi okkar starfsfólks er alltaf í forgrunni í allri okkar starfsemi,“ segir Sigríður

Í tilkynningunni er minnt á að berklar smitast við langvarandi eða náin samskipti við einstakling sem er með virka og smitandi berkla í lungum. Berklar smitast ekki við snertingu, af yfirborðum eða með því að nota áhöld eða fatnað sem smitaður einstaklingur hefur notað.

Öllu framlínustarfsfólki boðin skimun

Fram kemur í tilkynningunni að vinna við skimun framlínustarfsfólks Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins muni halda áfram af fullum þunga. Þar verði áfram forgangsraðað þannig að starfsfólk sem metið sé í meiri áhættu verði skimað sem fyrst en markmiðið sé að bjóða öllu framlínustarfsfólki sem vill upp á berklapróf.

Mikilvægt sé að halda til haga að þó berklabakterían greinist í blóðsýni þýðir það ekki að viðkomandi sé með berkla. Þegar einstaklingur sðe útsettur fyrir smiti eru miklar líkur á að ónæmiskerfi líkamans vinni á bakteríunni. Ef það gerist ekki geti bakterían verið til staðar í líkamanum lengi án þess að hafa nokkur áhrif og án þess að viðkomandi geti smitað aðra. Ef bakterían sé til staðar og ónæmiskerfi einstaklingsins veikist af einhverjum orsökum geti bakterían valdið virkum og smitandi berklum í lungum. Meðferð einstaklinga með smit sé tvennskonar. Einstaklingur sem er með bakteríuna í blóði en ekki virkt smit sé meðhöndlaður með lyfjameðferð sem geti tekið allt að sex mánuði. Viðkomandi haldi almennt fullri heilsu á meðan meðferðin fari fram en hún sé ekki án óþæginda. Einstaklingur sem sé með virkt berklasmit sé meðhöndlaður með lyfjameðferð í að minnsta kosti sex mánuði. Viðkomandi sé almennt ekki smitandi eftir tveggja vikna meðferð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“