fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Bretar sjá eftir Brexit – Mikill meirihluti vill aftur í Evrópusambandið

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 17:30

Flestir Bretar vilja fara aftur inn í Evrópusambandið. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikill meirihluti Breta myndi greiða atkvæði með því að ganga aftur í Evrópusambandið yrði slík atkvæðagreiðsla haldin nú. Nánast allir yngri Bretar vilja ganga í Evrópusambandið.

Þetta kemur fram í nýrri könnun YouGov fyrir sjónvarpsstöðina ITV.

Alls myndu 63 prósent Breta greiða atkvæði með því að ganga aftur í Evrópusambandið en 37 prósent gegn því. Eru því um tvöfalt fleiri sem eru fylgjandi inngöngu en á móti henni.

Hjá yngsta aldurshópnum, 16 til 24 ára, er munurinn sláandi. 83 prósent myndu greiða atkvæði með að ganga í Evrópusambandið en aðeins 17 prósent gegn því. Þetta er kynslóðin sem fékk ekki að greiða atkvæði árið 2016 þegar hin afdrifaríka ákvörðun var tekin.

Útgangan var samþykkt á sínum tíma með 52 prósentum atkvæða gegn 48. Andstaðan var mest í Skotlandi, Norður Írlandi og í London.

Tveir stjórnmálaflokkar í Bretlandi, Frjálslyndir demókratar og Græningjar, hafa það á stefnuskránni að ganga aftur inn í Evrópusambandið eða að minnsta kosti mynda tollabandalag með því. Verkamannaflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, vill bæta samstarfið við Evrópusambandið en hefur inngöngu ekki á dagskrá.

Hægri öfgaflokkurinn Umbótaflokkurinn, er á móti aðild, en forsvarsmenn hans hafa viðurkennt að útgangan hafi ekki skilað því sem útgöngusinnar lofuðu fyrir atkvæðagreiðsluna árið 2016. Kenna þeir Íhaldsflokknum, sem var í ríkisstjórn á þeim tíma, um að hafa klúðrað útgöngunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”